Obama segir Katrínu hafa opinberað ójöfnuðinn sveinn arnarson skrifar 29. ágúst 2015 07:00 Barack Obama og Mitch Landrieu, borgarstjóri New Orleans, heimsóttu íbúa á meðan á dvöl Obama stóð. NordicPhotos/AFP
Þessa dagana minnast margir þess að tíu ár eru liðin frá því að fellibylurinn Katrína skall með fullum þunga á New Orleans í Bandaríkjunum. Fellibylurinn sjálfur olli gífurlegum skemmdum þegar hann kom á land þann 29. ágúst 2005, en ástandið versnaði snögglega þegar varnarveggir gáfu sig undan afli sjávar. Barack Obama kom til New Orleans síðastliðinn fimmtudag og ræddi við borgarbúa af þessu tilefni. Obama sagði í ræðu sinni að fellibylurinn hefði opinberað misréttið sem hafði gerjast í áratugi. „New Orleans hefur í áratugi verið illa haldin af ójöfnuði,“ sagði forsetinn. „Ójöfnuði sem hefur skilið of margt fólk, sérstaklega fátækt fólk og svarta, eftir atvinnulaust eða án heilsugæslu eða góðs húsnæðis. Of mörg börn hafa alist upp umkringd ofbeldisglæpum þar sem þeim hefur boðist slæm menntun og fá þeirra hafa haft tækifæri til að brjótast úr viðjum fátæktar.“ Bandarísk stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir aðstoðina sem var veitt þegar fellibylurinn fór yfir New Orleans. Neyðaraðstoð og hjálpargögn bárust seint og illa, gripdeildir, þjófnaðir og óeirðir blossuðu upp eftir fellibylinn og skálmöld ríkti á götum borgarinnar. Endurbygging borgarinnar varð einnig mjög kostnaðarsöm og mörgum íbúum New Orleans fannst hún ganga of hægt. Rétt eins hefur gagnrýnin verið á þá leið að uppbygging borgarinnar hafi að mestu leyti verið í þágu hvítra íbúa á kostnað svartra. Ójöfn staða kynþátta í New Orleans eftir fellibylinn hefur verið í umræðunni um nokkurt skeið og að mörgu leyti varpað ljósi á skuggahliðar bandarísks samfélags. Bandarískt þjóðfélag hefur á síðustu misserum þurft að takast á við vandamál kynþáttahyggju sem öllum virðast vera ljós. Lögregluofbeldi gegn svörtum drengjum og aftaka lögreglumanns á Michael Brown, þeldökkum unglingi í Ferguson, vakti bandarískt samfélag svo um munaði. Um 80 prósent borgarinnar urðu sjónum að bráð og voru götur borgarinnar sums staðar á sex metra dýpi. Alls létu 1.883 lífið af völdum fellibylsins, þar af langflestir í New Orleans. Talið er að tjón vegna Katrínu hafi numið um 150 milljörðum dala, sem samsvarar um 19.500 milljörðum króna á gengi dagsins í dag.
Mest lesið Albert sýknaður Innlent Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Innlent Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Innlent Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Innlent Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Erlent Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Innlent Efast um að málinu verði áfrýjað Innlent Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Fleiri fréttir Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjá meira