Lífið

Slátraði 5000 kaloríu hamborgara á undir tíu mínútum - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kate Ovens er greinilega mögnuð kona.
Kate Ovens er greinilega mögnuð kona. vísir
Kate Ovens er 21 árs nemi í Bretlandi sem hefur þann hæfileika að geta borðað mikið og það mjög hratt.

Hún heldur úti YouTube-rás þar sem hún deilir myndböndum af sér þegar hún er svöng og fær sér í gogginn. Á dögunum fékk þá áskorun að borða 5000 kaloríu hamborgara sem er stærri en hausinn á henni. Hún gjörsamlega slátraði borgaranum og það á undir tíu mínútum.

Hamborgarinn er á boðstólnum á veitingarstaðnum Jam Jar í Newcastle en hér að neðan má sjá þessa nettu konu slafra borgaranum í sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×