Fótbolti

Ótrúlegt mark hjá blindum fótboltamanni | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Íraninn er hér að tæta vörn Marokkó í sig.
Íraninn er hér að tæta vörn Marokkó í sig.
Íraninn Behzad Zadaliasghari er orðinn internetstjarna eftir að hafa skorað ótrúlegt mark í blindrafótboltakeppni Ólympíumóts fatlaðra.

Taktar Íranans minntu helst á Lionel Messi en Messi gæti þetta þó aldrei með bundið fyrir augun. Þó er farið að kalla Zadaliasghari í fjölmiðlum blinda Messi.

Það er spilaður tvenns konar blindrabolti á Ólympíumótinu en í þessum leik eru allir alveg blindir. Það kemur hljóð úr boltanum og aðstoðarmenn mega kalla skilaboð til leikmanna.

Íran vann leikinn 2-0 og spilar við Brasilíu í lokaleik riðlakeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×