Enski boltinn

Enskur fótboltamaður lést í miðjum leik

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Myndin tengist efni fréttar ekki beint.
Myndin tengist efni fréttar ekki beint. vísir/getty
Daniel Wilkinson, 26 ára gamall enskur fótboltamaður, hneig niður í miðjum bikarleik í gærkvöldi og lést skömmu síðar. BBC greinir frá.

Wilkinson var að spila með liði sínu Shaw Lane sem er í áttundu deild enska boltans þegar hann hneig niður.

Reynt var að hlúa að honum á vellinum áður en farið var með Wilkinson á næsta sjúkrahús þar sem hann lést.

„Hugur okkar og bænir eru með fjölskyldu hans og vinum,“ segir í yfirlýsingu frá Shaw Lane, en félagið er staðsett nærri Barnsley.

Shaw Lane var að vinna leikinn, 2-0, þegar Wilkinson hneig niður en þá var um hálftími eftir. Leikurinn var flautaður af eftir atvikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×