Lífið

Ungur Íslendingur í Malasíu býr á götunni í sólarhring

Bjarki Ármannsson skrifar
Árni kemur sér fyrir á götunni klukkan tíu að staðartíma.
Árni kemur sér fyrir á götunni klukkan tíu að staðartíma. Myndir/Snapchat-aðgangurinn BoysNBackpacks
Ungur Íslendingur á bakpokaferðalagi um Asíu „býr“ um þessar mundir á götunni í borginni Kuala Lumpur, höfuðborg Malasíu. Hann hyggst betla sér til matar í 24 klukkustundir til að þess að kynnast frekar lífsviðhorfi þeirra sem búa við sárafátækt í þessum heimshluta.

Hinn rúmlega tvítugi Árni Steinn Viggósson greinir skilmerkilega frá þessu í Facebook-færslu sem vakið hefur mikla athygli. Hann er einn nokkurra ungra Íslendinga sem ferðast nú um Asíu og greina frá því sem á daga þeirra drífur á samfélagsmiðlunum Snapchat og Instagram.

Tilraun Árna hófst klukkan tíu að morgni á staðartíma, eða klukkan tvö um nótt á Íslandi. Hún hefur því staðið yfir í um tíu og hálfa klukkustund þegar þetta er skrifað.

Vinir Árna hafa sent inn nokkur myndskeið á Snapchat í dag þar sem meðal annars kemur fram að hann hefur fengið gefins tvær vatnsflöskur, um 800 íslenskar krónur í malasískum gjaldeyri og fótboltatreyju merkta Barcelona, en Árni hélt út á götuna á stuttbuxunum einum saman. Peninginn nýtti Árni í að kaupa sér tvo brauðhleifa í 7/11 búð.

Þá lenti Árni í hellirigningu á einum tímapunkti en náði að koma sér í skjól í húsasundi.

Í Facebook-færslu Árna, sem yfir þúsund manns hafa „lækað“ við, segir hann að hann vilji að þessari tilraun lokinni safna örlitlum peningi fyrir „allt góða fólkið“ sem hann hittir á ferðalagi sínu.

„Að lokum vil ég síðan gerast svo djarfur að biðja þig um að deila þessu með vinum þínum svo að þessi skilaboð komist sem lengst,“ skrifar hann. „Það væri svo fallegt og skemmtilegt ef þetta frábæra litla ævintýri gæti að lokum gefið af sér og umturnast í einhverskonar góðverk frá okkur til þeirra sem hafa það alls ekki jafn gott og við.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×