Viðskipti innlent

World Class opnar í Norðurturninum

ingvar haraldsson skrifar
Íslandsbanki og World Class verða bæði í Norðurturninum.
Íslandsbanki og World Class verða bæði í Norðurturninum. vísir/gva
World Class hyggst opna líkamsræktarstöð og heilsulind í Norðurturninum við Smáralind.

Fyrirtækið hefur undirritað átta ára leigusamning við Reginn um útleigu á tvö þúsund fermetra húsnæði á annarri hæð hússins.

World Class rekur fyrir tíu líkamsræktarstöðvar. Íslandsbanki tilkynnti um helgina að höfuðstöðvar bankans yrðu fluttar í Norðurturninn við Smáralind. Því er Norðurturninn orðinn fullnýttur að því er kemur fram í tilkynningu frá Regin.

„Það er mat stjórnenda Regins hf. og  Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. að þessi tíðindi séu mjög jákvæð fyrir verslun og þjónustu í Smáralind og nágrenni og styrki samkeppnisstöðu svæðisins,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×