Viðskipti innlent

Hægt að panta flug í gegnum Facebook spjall

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Icelandair er á fljúgandi ferð inn í snjallsímaöldina.
Icelandair er á fljúgandi ferð inn í snjallsímaöldina. Mynd/Vísir
Nýjung hjá Icelandair gerir ferðalöngum kleyft að panta sér flug í gegnum Facebook skilaboð. Sjálfvirkt forrit tekur við pöntunum. Fyrst um sinn verður þjónustan eingöngu á ensku.

Það eina sem viðkomandi þarf að gera er að hefja samtal við Facebook síðu Icelandair og skrifa „Book a flight“ [bóka flug] eða „book a stopover“ [bóka millilendingu]. Forritið spyr notendur spurninga um brottfararstað, komustað, dagsetningar og annað sem við kemur pöntun. Þegar allar nauðsynlegar upplýsingar liggja fyrir eru notendur sendir á heimasíðu Icelandair þar sem ekkert er eftir nema að borga ferðina. Eftir að flug hefur pantað er áfram hægt að nota forritið, ýmist til að nálgast upplýsingar um Ísland eða um flugáætlanir sínar.

„Icelandair vill eiga samskipti við viðskiptavini sína á öllum stigum ferða sinna,“ segir Michael Raucheisen, yfirmaður markaðsmála Icelandair í Bandaríkjunum, í samtali við Condé Nast Traveler. „Facebook skilaboð eru auðveld samskiptaleið við hinn samfélagsmiðlavædda heim. Fólk getur einnig deilt og miðlað ferðum sínum með fjölskyldu og vinum í rauntíma og þannig er allt ferlið auðveldað.“

Framtíðin í Facebook spjalli

Icelandair er ekki fyrsta flugfélagið sem nýtir sér Facebook skilaboð, en Hollenska flugfélagið KLM opnaði í fyrra þjónustu við viðskiptavini í gegnum miðilinn sem opin er allan sólarhringinn. Frá mars á þessu ári hafa viðskiptavinir þeirra einnig getað innritað sig og fengið brottfararspjöld í gegnum Facebook spjall. „Við viljum vera þar sem viðskiptavinir okkar velja að vera,“ sagði Tjalling Smit frá KLM, aðspurður hvers vegna þeir búa ekki til sitt eigið smáforrit fyrir síma.

Flugfélög eru ekki einu fyrirtækin sem sjá tækifærin í Facebook spjallinu, en smáforritið SnapTravel, sem gerir fólki kleyft að panta hótel, notast einnig við Facebook skilaboð. Þar er hægt að skrifa eitthvað í líkingu við „Hversu mikið kostar hótelsvíta í Miami um helgina?“ og forritið leitast við að finna ódýrasta tilboðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×