Sport

Fullkominn leikur í gær, vann mótið í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnar Davíð Jónsson með svakalega helgi.
Arnar Davíð Jónsson með svakalega helgi.
Keiluspilarinn Arnar Davíð Jónsson hefur átt ótrúlega helgi en hann gerði sér lítið fyrir og spilaði fullkominn leik í gær á Moss Open í Noregi. Það þýðir að hann náði í 300 stig.

Úrslitin fóru síðan fram í dag og var Arnar fyrir daginn í 8. sæti. Arnar hélt uppteknum hætti áfram í dag og hreinlega vann mótið.

Vikan hefur verið tíðindamikil hjá honum, fyrst valinn keilari ársins, spilaði svo 300 leik í gær og tryggir sér sigur á þessu sterka móti í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×