Bíó og sjónvarp

Dennis Quaid er viðkunnanlegur Texasbúi

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Björn Hlynur Haraldsson er eins og stendur við tökur á annarri seríu sjónvarpsþáttanna Fortitude.
Björn Hlynur Haraldsson er eins og stendur við tökur á annarri seríu sjónvarpsþáttanna Fortitude. Vísir/Stefán
„Ég er á Reyðarfirði núna þar sem tökurnar fara fram og það gengur mjög vel. Tökurnar eru með svipuðu sniðu og í fyrstu þáttarröðinni, en helstu breytingarnar sem snúa að mér sjálfum eru þær að hlutverk mitt er orðið mun veigameira en í fyrstu seríunni. Ég leik lögreglumanninn Eric Odegard sem er svona náungi sem hefur ekkert sérstaklega háar hugmyndir um eigin frama. Hann er eiginmaður bæjarstýrunnar og hefur haldið sig þægilega í skugganum af henni. Í komandi þáttum þarf hann hins vegar að taka sig á og axla meiri ábyrgð í bænum,“ segir Björn Hlynur leikari aðspurður um hlutverk sitt í bresku þáttaröðinni Fortitude.

Nokkrar nýjar persónur hafa verið kynntar til sögunnar og þar er í aðalhlutverki stórleikarinn Dennis Quaid en hann og Björn Hlynur koma til með að leika töluvert mikið saman í þessum nýjustu Fortitude-þáttum.

„Já, leiðir okkar karaktera skarast mikið í nýjustu seríunni, svo við komum til með að leika saman í þó nokkrum senum. Ég kynntist honum aðeins þegar við vorum í stúdíótökum í London núna eftir áramótin og hann er afar viðkunnan­legur Texasbúi,“ segir Björn Hlynur.

Það er óhætt að segja að tökurnar séu umfangsmiklar og munu bæjarbúar finna fyrir ýmiss konar breytingum meðan á tökum stendur. Til að mynda verður götum í bænum lokað tímabundið á nokkrum stöðum og íbúar Reyðarfjarðar komast ekki hjá því að taka þátt í verkefninu á einhvern hátt.

„Það má segja að þetta taki bæinn algjörlega yfir meðan á þessu stendur. Svo það er óhætt að segja að bæjarbúar verði varir við okkur og ansi margir komnir með aukahlutverk í þáttunum. Þetta hefur jákvæð áhrif á ýmiss konar atvinnustarfsemi á svæðinu. Það er alltaf gaman þegar sirkusinn mætir í bæinn, en það er líka alltaf léttir þegar hann fer aftur býst ég við,“ segir Björn Hlynur.

Aðspurður hvernig standi á því að hann sé ítrekað í hlutverki lögreglumanns á skjáum landsmanna segir Björn Hlynur að undafarið hafi verið mikið um lögregludramaþætti og varla sé hægt að komast hjá því að taka að sér slíkt hlutverk.

„Þessi skandinavíska krimmabylgja hefur verið áberandi undafarin ár, en ég held að þetta sé orðið gott í bili og ég leggi lögregluhlutverkið á hilluna eftir þetta,“ segir Björn Hlynur sem er þó að vonum ánægður með hlutverk sín.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.