Innlent

Eldur kviknaði í bíl við Grandagarð

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Slökkvistarf gekk greiðlega.
Slökkvistarf gekk greiðlega. Vísir/Stefán
Eldur kviknaði í bíl við Grandagarð í Vesturbæ Reykjavíkur á ellefta tímanum í dag. Bíllinn var alelda þegar slökkvilið bar að garði, en aldrei var nein hætta á ferðum, að sögn slökkviliðsins.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn, og engan sakaði. Ekki er talið að um íkveikju hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×