Fótbolti

Sparkspekingur ESPN um möguleika Íslands: Stökkið líklega of stórt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenska liðið mætir því portúgalska í sínum fyrsta leik á stórmóti 14. júní næstkomandi.
Íslenska liðið mætir því portúgalska í sínum fyrsta leik á stórmóti 14. júní næstkomandi. vísir/myndasafn ksí
Sparkspekingurinn Craig Burley rýnir í riðil Íslands á EM í Frakklandi á heimasíðu ESPN í dag.

„[Cristiano] Ronaldo stendur upp úr eins og hann gerir venjulega,“ sagði Burley um portúgalska liðið sem er í 8. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í morgun.

„Portúgal vann sinn riðil í undankeppninni sem var reyndar ekkert sérstaklega sterkur.“

Af liðunum fjórum í F-riðli hefur Burley minnsta trú á Ungverjalandi.

„Ef eitthvað lið verður fallbyssufóður í þessum riðli, þá verður það ungverska liðið,“ sagði Burley.

Hann segir að stökkið á EM geti reynst íslenska liðinu of stórt en það er sem kunnugt er nýliði á stórmóti.

„Eins góðir og Íslendingar voru í undankeppninni held ég að þetta verði aðeins of stórt stökk fyrir þá,“ sagði Burley sem telur að baráttan um efsta sætið í riðlinum standi á milli Portúgals og Austurríkis.

Ísland mætir Portúgal í Saint-Étienne í fyrsta leik sínum á EM 14. júní næstkomandi.


Tengdar fréttir

Ekki liðið sem fer til Frakklands

Ísland tapaði fyrir Noregi, 3-2, í vináttulandsleik í Ósló í gærkvöldi. Mark eftir 40 sekúndur gaf tóninn fyrir Noreg. Ísland hefur nú fengið á sig nítján mörk í átta vináttulandsleikjum síðan EM-sætið var tryggt.

Klara: Vona að fólk fjölmenni og segi takk

Klara Bjartmarz, framkvæmdarstjóri KSÍ, segir að Knattspyrnusambandið hafi í mörg horn að líta fyrir EM í knattspyrnu í sumar, en lokaundirbúningur Íslands er nú í fullum gangi.

Ísland áfram besta Norðurlandaþjóðin

Ísland er í 34. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í morgun. Íslenska liðið hækkar um eitt sæti frá síðasta lista.

Aron Einar: Ég get miklu betur en þetta

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var ekki ánægður með sína frammistöðu í kvöld en gladdist þó yfir því að hafa ekki fundið fyrir ökklameiðslunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×