Nýr kafli í sögu Borgarinnar eilífu Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. júní 2016 11:07 Virginia Raggi var sigurreif í nótt. visir/getty
Eftir árhundruð af karlkyns borgarstjórum og keisurum hafa Rómverjar kosið sér kvenkyns borgarstjóra. Virgina Raggi, 37 ára gamall lögfræðingur, leiddi Fimmstjörnuhreyfinguna til sigurs í borgarstjórnarkosningunum í borginni eilífu. Hún hlaut um tvo þriðju hluta atkvæða í seinni umferð borgarstjórakosninganna og lýsti andstæðingur hennar yfir ósigri skömmu eftir miðnætti. Raggi setti spillingu opinberra fulltrúa og sorphirðumál á oddinni í baráttu sinni en þau hafa lengi þjakað íbúa borgarinnar. Sigur Raggi og Fimmstjörnuhreyfingarinnar er ekki síst rakinn til fyrirferðamikils dómsmáls sem nú er rekið fyrir ítölskum dómstólum. Þar er réttað yfir fjölda ríkisstarfsmanna og kjörinna fulltrúa vegna meintrar spillingar þeirra. Sumir þeirra hafa jafnvel verið sakaðir um að beita „mafíulegum“ hótunum til þrýsta á samningagerð. Ítalir telja að þessi langlífa spilling meðal toppa Rómar hafi ýtt undir hningun innviða borgarinnar. Sorphirðu- og samgöngumál hafa lengi verið í ólestri og eru íbúar borgarinnar langþreyttir á ástandinu. Á þann streng spilaði Raggi látlaust í baráttu sinni og Fimmstjörnuhreyfingarinnar. Hún hefur heitið því að auka gagnsæi í störfum borgarinnar og standa vörð um lög og reglu. „Íbúar Rómar hafa sigrað, með okkur hefst nýtt skeið í sögu borgarinnar,“ sagði Raggi þegar úrslitin lágu fyrir í nótt.
Mest lesið Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Erlent Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt Innlent Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd Innlent Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum Innlent Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Innlent List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Innlent Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Innlent Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Innlent Fleiri fréttir Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Sjá meira