Innlent

Óljósar upplýsingar í nauðgunarmáli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Enginn hefur verið yfirheyrður vegna málsins.
Enginn hefur verið yfirheyrður vegna málsins. Vísir/Vilhelm
Rannsókn stendur yfir á nauðgun sem ung kona sem var ferðamaður hér á landi kærði til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um miðjan nóvember. Þetta staðfestir Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar, í samtali við Vísi.

Upplýsingar í málinu munu vera óljósar og lítið sem lögreglan hefur að vinna úr. Fram hefur komið að konan var gestur á hóteli í miðbæ Reykjavíkur en eftir því sem Vísir kemst næst mun hið meinta brot ekki hafa átt sér stað þar.

Enginn hefur verið yfirheyrður vegna málsins. Málið er þó enn á borði lögreglu sem hefur úr litlum upplýsingum að vinna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×