Svona gekk Bareinkappaksturinn fyrir sig í formúlunni | Myndband
Nico Rosberg er kominn með sautján stiga forskot á liðsfélaga sinn, heimsmeistarann Lewis Hamilton, eftir tvær fyrstu keppnirnar í formúlu eitt tímabilsins.
Aðra keppnina í röð var Lewis Hamilton á ráspól en missti Nico Rosberg framúr sér. Í viðbót lenti Hamilton strax í árekstri í fyrstu beygju og gerði því vel að vinna sig aftur upp í þriðja sætið.
Nico Rosberg er aftur á móti í fínum málum með fullt hús en hann vann einnig þrjár síðustu keppnirnar á síðasta tímabil og hefur því unnið fimm kappakstra í röð.
Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson fóru yfir Bareinkappaksturinn og það má sjá allt það helsta sem gerðist í keppninni í Samantektarþætti þeirra í spilaranum hér fyrir ofan.
Tengdar fréttir

Keyrði á heimsmeistarann | Sjáðu hvernig Barein-kappaksturinn byrjaði
Lewis Hamilton, heimsmeistari ökumanna, var á ráspól í Barein-kappakstrinum en lenti í óhappi eftir aðeins nokkrar sekúndur eftir ræsinguna.

Rosberg: Ræsingin var lykillinn að þessu
Nico Rosberg kom fyrstur í mark á Mercedes bílnum. Formúlu 1 keppnin í Bahrein var spennandi frá upphafi til enda. Það var mikið um fram úr akstur en Rosberg var ekki ógnað af viti. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Lucas di Grassi vann á Long Beach
Lucas di Grassi á ABT vann Formúlu E kappaksturinn sem fram fór á Long Beach. Di Grassi ræsti annar af stað.

Nico Rosberg vann í Bahrein
Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstrinum í Bahrein. Kimi Raikkonen á Ferrari varð annar og Lewis Hamitlon varð þriðji á Mercedes.

Hamilton: Ég náði hring þegar ég þurfti að virkilega að ná honum
Lewis Hamilton náði öðrum ráspólnum í röð i Bahrein í dag. þetta var einnig hans annar í Bahrein og hans 51. á Formúlu 1 ferlinum. Hringurinn var einnig sá fljótasti í sögunni á Bahrein brautinni.