Innlent

Sex hundruð Íslendingar sagðir tengjast Panama-skjölunum

ingvar haraldsson skrifar
Fjölmargir Íslendingar eru sagðir tengjast gögnunum.
Fjölmargir Íslendingar eru sagðir tengjast gögnunum.
Um 800 félög tengd 600 Íslendingum eru í Panama-skjölunum svokölluðu sem upplýsingar voru birtar um í kvöld.

Í Kastljósþætti kvöldsins kom fram að í gögnunum væru upplýsingar um milljarðalánaviðskipti tengd aflandsfélögunum, ítarleg tölvupóstsamskipti, vegabréf og upplýsingar um hverjir hafi tekið við fjármunum sem íslensk stjórnvöld hafi frá hruni reynt að finna. 

Frekari umfjöllun um félög tengd Íslendingum eru boðuð á næstu vikum og mánuðum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×