Innlent

Landamæri glæpa þurrkast út

Ásgeir Erlendsson skrifar
Ísland getur skipt jafn miklu máli og önnur lönd þegar kemur að alþjóðlegri brotastarfsemi. Þetta segir aðstoðarforstjóri Europol sem bendir á að með tilkomu flóknari netglæpa hafi landamæri horfið. Tengifulltrúi Íslands hjá stofnuninni segir menntun og tækniþáttinn hér heima vera akkilesarhæl þegar kemur að þessum nýju gerðum glæpa.

Wil van Gemert, aðstoðarforstjóri Europol og Karl Steinar Valsson, tengifulltrúi Íslands hjá stofnuninni, héldu erindi á fundi lögreglu og tollgæslu á Grand hóteli í dag. Þar var farið yfir þær breytingar sem orðið hafa á skipulagðri brotastarfsemi, netglæpum, sem og annars konar glæpum í evrópu og hvernig Ísland geti brugðist við þróuninni.

„Þið verðið að sætta ykkur við að brotastarfsemi fer nú fram í auknum mæli

óháð landamærum.Landfræðilegir tálmar skipta engu máli lengur.Það skiptir jafnvel ekki máli lengur þótt ríki sé eyland. Hraði breytinganna og umfang þeirra eykst frá degi til dags. Það eykur vandann en það eru möguleikar í stöðunni fyrir löggæsluaðila.“ Segir Gemert.

Fjármála- og netbrot hafi aukist til muna og þróast hratt á síðustu árum.Karl Steinar segir að Ísland sé á mörgum sviðum vel undirbúið að takast á við brot sem þessi og á öðrum sé hægt að gera betur.

„Menntunarþátturinn og tækniþátturinn er svolítill akkilesarhæll. Við höfum mjög hæfa menn á mjög mörgum sviðum en það er rými til að bæta okkur líka. “ Segir Karl Steinar. 

Hann segir að sá tími sé liðinn að íslenska lögreglan geti undirbúið sig undir þess konar afbrot sem fór að bera á fyrir nokkrum árum í öðrum löndum.

„Nú megum við raunverulega búast við nákvæmlega sömu brotunum hjá okkur á sama tíma og jafnvel áður en þau birtast í Evrópu. “

Gemert segir að miklu máli skipti að Ísland undirbúi sig sem best og skiptir engu hvaða brotaflokk um ræðir.

„Þið verðið að hafa viðbúnað í öllum brotaflokkum, hvort sem um er að ræða Netglæpi, skipulagða glæpi eða hryðjuverk.“ Segir Gemert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×