Innlent

Við­skipta­lífið sér­stak­lega á­huga­samt um að fylgja Höllu út

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair, Nótt Thorberg forstöðumaður Grænvangs og Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis voru öll í viðskiptasendinefnd Íslands sem fylgdi Höllu Tómasdóttur forseta í opinbera heimsókn hennar til Danmerkur í vikunni.
Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair, Nótt Thorberg forstöðumaður Grænvangs og Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis voru öll í viðskiptasendinefnd Íslands sem fylgdi Höllu Tómasdóttur forseta í opinbera heimsókn hennar til Danmerkur í vikunni. Vísir/vilhelm

Viðskiptasendinefndin sem fylgdi Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í fyrstu opinberu heimsókn hennar til Danmerkur í vikunni taldi tæplega sjötíu manns og er ein sú stærsta frá upphafi, að sögn forstöðumanns hjá Íslandsstofu. Sendinefndin stendur straum af öllum kostnaði sjálf, forsetaembættið greiðir aðeins flug undir sitt fólk.

Auk forsetahjónanna Höllu Tómasdóttur og Björns Skúlasonar voru þrettán í opinberri sendinefnd Íslands, þar á meðal Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, Ragnhildur Helgadóttir rektor Háskólans í Reykjavík og Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunnar. Heildarlista yfir þá sem voru í sendinefndum má finna neðst í fréttinni.

Opinbera sendinefndin fékk gistingu í konungshöllinni en forsetaembættið greiðir eingöngu flugmiða fyrir forsetahjónin og eigið starfsfólk, allir hinir greiddu sjálfir sín flug. Ein undantekning var reyndar þar á: Ari Eldjárn, grínisti. Hann tilheyrði ekki sendinefnd, en kom fram með uppistand í móttöku forsetahjónanna til heiðurs konungshjónunum, og fékk greitt fyrir.

Tæplega sjötíu manns frá fimmtíu fyrirtækjum

Sérstök viðskiptasendinefnd, sem Íslandsstofu ásamt nokkrum öðrum, var falið að setja saman var einnig með í för. Í þeirri nefnd voru meðal annars Helgi Rúnar Óskarsson forstjóri 66 gráður norður, Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair, Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og Lilja Björk Einarsdóttir, forstjóri Landsbankans. 

Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður útflutnings- og fjárfestingasviðs hjá Íslandsstofu.Vísir/Sigurjón

Viðskiptasendinefndir eru algjörlega á eigin framfæri í heimsóknum sem þessum. Áhugi á að fylgja Höllu út var gríðarlegur, að sögn Sigríðar Daggar Guðmundsdóttir, forstöðumanns útflutnings- og fjárfestinga hjá Íslandsstofu.

„Það voru tæplega sjötíu manns frá um fimmtíu fyrirtækjum og samtökum,“ segir Sigríður Dögg. Hún telur ýmislegt skýra þennan mikla áhuga.

„Það var mikil spenna að taka þátt í þessari fyrstu opinberu heimsókn hjá Höllu. Hún er gríðarlega sterkur fulltrúi fyrir Ísland og hefur náttúrulega mikla þekkingu á viðskiptalífi.“

Það var líka viðskiptasendinefnd sem fór með Guðna Th. í hans fyrstu opinberu heimsókn, sem var líka til Danmerkur?

„Jú, það passar. Og þetta tíðkast að það fari svona viðskiptasendinefndir með bæði forseta en líka ráðherrum og öðrum ráðamönnum. Þetta er bara mjög mikilvægt til að opna dyr fyrir íslenskt atvinnulíf erlendis.“

Mjög margir úr viðskiptsendinefndinni voru viðstaddir hátíðarkvöldverð í konungshöllinni á þriðjudag. Lista yfir þá sem þar voru viðstaddir er að finna hér. Við kvöldverðinn voru þó einnig fulltrúar úr íslensku menningarlifi sem hirðin bauð sérstaklega; þar á meðal Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur og Sigurður Flosason tónlistarmaður.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir alla þá sem voru í sendinefndum fyrir hönd Íslands í opinberri heimsókn forseta Íslands til Danmerkur.

Opinber sendinefnd: 

  1. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands
  2. Björn Skúlason, maður forseta
  3. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Hjalti Sigvaldason Mogensen, maður utanríkisráðherra
  4. Pétur Ásgeirsson sendiherra Íslands í Danmörku og Jóhanna Gunnarsdóttir, kona sendiherra
  5. Sif Gunnarsdóttir, forsetaritari
  6. Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og Eva Þengilsdóttir, kona ráðuneytisstjóra
  7. Árni Sigurjónsson, skrifstofustjóri Embættis forseta Íslands
  8. Una Sighvatsdóttir, sérstakur ráðgjafi hjá Embætti forseta Íslands
  9. Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir, ráðgjafi utanríkisráðherra
  10. Stefanía K. Bjarnadóttir, menningar- og viðskiptafulltrúi hjá sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn
  11. Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu
  12. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
  13. Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík 
  14. Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands
  15. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar 

Í fylgd sendinefndarinnar:

  1. Helga Einarsdóttir, aðstoðarmaður forseta
  2. Sveinn Ægir Árnason, frá embætti ríkislögreglustjóra 

Viðskiptasendinefnd:

  1. Linda Fanney Valgeirsdóttir, Framkvæmdastjóri Alor
  2. Rakel Eva Sævarsdóttir, Sjálfbærnisérfræðingur Alor
  3. Valgeir Þorvaldsson, Aðstoðarframkvæmdastjóri og stofnandi Alor
  4. Kristinn Aspelund, Framkvæmdastjóri Ankeri Solutions
  5. Eyjólfur Magnús Kristinsson, Framkvæmdastjóri AtNorth
  6. Björn Brynjúlfsson, Framkvæmdastjóri Borealis Data Center og formaður Samtaka gagnavera
  7. Hildur Árnadóttir, Stjórnarformaður Íslandsstofu
  8. Pétur Óskarsson, Framkvæmdastjóri Íslandsstofu
  9. Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, Forstöðurmaður útflutnings og fjárfestinga Íslandsstofu
  10. Guðmundur Kristjánsson, Forstjóri Brim
  11. Edda Sif Aradótir, Framkvæmdastýra Carbfix
  12. Nana Bule, Stjórnarformaður Carbfix
  13. Michael Ertmann, Framkvæmdastjóri þróunarmála Carbon Recycling International
  14. Björk Kristjánsdóttir, Fjármálastjóri Carbon Recycling International
  15. Páll Erland, Forstjóri HS Veitur og stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins
  16. Erna Hrund Hermannsdóttir​​​​, Sölustjóri Collab á Norðurlöndunum
  17. Örn Guðmundsson, Framkvæmdastjóri COWI Iceland
  18. Hekla Arnardóttir, Framkvæmdastjóri Crowberry Capital
  19. Hallgrímur Björnsson, Stjórnarformaður, Dansk-íslenska viðskiptaráðið
  20. Stella Stefánsdóttir, Framkvæmdastjóri, Dansk-íslenska viðskiptaráðsið
  21. Peter Mollerup, Stjórnarmaður, Dansk-íslenska viðskiptaráðið
  22. Þorvaldur Flemming Jensen, Aðildarfélagi, Dansk-íslenska viðskiptaráðið
  23. Sæmundur Sæmundsson, Framkvæmdastjóri, Efla
  24. Birta Kristín Helgadóttir, Sviðsstjóri orku, Efla
  25. Björn Einarsson, Framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptastýringar Eimskip
  26. Thomas Breth Clausen, Framkvæmdastjóri Eimskip Denmark
  27. Katrín Olga Jóhannesdóttir, Framkvæmdastjóri Elma Power Exchange
  28. Sveinn Sölvason, Forstjóri Embla Medical
  29. Þorvarður Sveinsson, Framkvæmdastjóri Farice
  30. Sigurður Hannesson, Framkvæmdastjóri Samtök iðnaðarins
  31. Sigríður Mogensen, sviðstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins.
  32. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Framkvæmdastjóri Samtaka sjávarútvegsins
  33. Jóna Árný Þórðardóttir, Bæjarstjóri Fjarðarbyggð
  34. Fanney Kr Hermannsdóttir, Framkvæmdastjóri FnF investment company
  35. Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir, Stjórnarmaður Gjögur
  36. Ingi Jóhann Guðmundsson, Framkvæmdastjóri Gjögur
  37. Nótt Thorberg, Forstöðumaður Grænvangur
  38. Hans Orri Kristjánsson, Verkefnastjóri Grænvangur
  39. Björk Kristjánsdóttir, Fjármálastjóri HS Orka
  40. Bogi Nils Bogason, Forstjóri Icelandair
  41. Bjarni Birkir Harðarson, Sölustjóri Icelandair í Evrópu
  42. Phedra Maren Thompson, Sölustjóri Icelandair í Danmörku
  43. Björn Brynjúlfur Björnsson, Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
  44. Sveinn Hannesson, Forstjóri Jarðboranir
  45. Árni Magnússon, Forstjóri ÍSOR
  46. Rósbjörg Jónsdóttir, Framkvæmdastjóri Orkuklasans
  47. Ólafur Torfason, Framkvæmdastjóri International Carbon Registry
  48. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, Forstjóri og stofnandi Kerecis
  49. Jón Ágúst Þorsteinsson, Forstjóri og stofnandi Klappir
  50. Íris Karlsdóttir, Forstöðumaður samstarfs Klappir
  51. Lilja B. Einarsdóttir, Bankastjóri Landsbankans
  52. Guðmundur I. Ásmundsson, Forstjóri Landsnets
  53. Kristín Linda Árnadóttir, Aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
  54. Ríkarður Ríkarðsson, Framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviðs hjá Landsvirkjun
  55. Magnús Bjarnason, Framkvæmdastjóri Mar Advisors
  56. Árni Sigurðsson, Forstjóri Marel
  57. Sverrir Sverrison, Stjórnarformaður Pure Arctic
  58. Ingunn Agnes Kro, Stjórnarformaður Rarik
  59. Sævar Freyr Þráinsson, Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
  60. Hera Grímsdóttir, Framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur
  61. Gunnar Egill Sigurðsson, Forstjóri Samkaupa
  62. Írís Baldursdóttir, Framkvæmdastjóri og meðstofnandi Snerpa Power
  63. Ragnar Sær Ragnarsson, Framkvæmdastjóri THG Arcitects / Thor - Real Estate Company
  64. Sólrún Kristjánsdóttir, Framkvæmdastjóri Veitur
  65. Egill Viðarsson, Framkvæmdastjóri Verkís
  66. Helgi Helgason , Framkvæmdastjóri Verne Global Iceland
  67. Andri Þór Guðmundsson, Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar og stjórnarformaður Viðskiptaráðs
  68. Helgi Rúnar Óskarsson, Forstjóri 66° North

Í fyrri útgáfu fréttarinnar var haft eftir Sigríði Dögg Guðmundsdóttur að viðskiptasendinefndin væri líklega sú stærsta frá upphafi. Það reyndist ekki rétt, þó að sendinefndin sé vissulega ein sú fjölmennasta, og hefur fréttin verið uppfærð samkvæmt því.


Tengdar fréttir

Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki

Halla Tómasdóttir forseti Íslands klæddist gylltum síðkjól eftir breska hönnuðinn Jenny Packham í hátíðarkvöldverði sem haldinn var í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Hönnuðurinn virðist vinsæll meðal konungsfólks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×