Innlent

Þrettán ára brýtur blað í skáksögu landsins

Sveinn Arnarsson skrifar
Vignir Vatnar að tafli í Runavík í Færeyjum. Hann tefldi afar vel á mótinu.
Vignir Vatnar að tafli í Runavík í Færeyjum. Hann tefldi afar vel á mótinu. Mynd/Gunnar Björnsson
Vignir Vatnar Stefánsson náði þeim merka áfanga að vera yngsti íslenski skákmaðurinn til að ná yfir 2.400 skákstig. Því náði hann í gær með góðu jafntefli í níundu umferð alþjóðlegs skákmóts sem fram fer í Runavík í Færeyjum. Forseti skáksambandsins segir hann vera farinn að banka á dyrnar.

Vignir Vatnar Stefánsson er fæddur árið 2003 og er því 13 ára gamall. Jafnteflið í gær, í lokaumferð mótsins, var einkar snoturt gegn sterkum dönskum alþjóðlegum meistara, Símoni Bekker-Jensen.

Gunnar Björnsson
Enginn annar íslenskur skákmaður hefur náð svo hátt á alþjóðlega stigalistanum aðeins 13 ára gamall. Þó er vert að hafa í huga að skákstig eru örlítið hærri nú en þau voru hér áður fyrr svo það gæti spilað einhverja rullu. Þrátt fyrir það telst þetta mikið afrek fyrir svo ungan skákmann.

„Ég er eiginlega í pínulitlu sjokki að hafa náð þessu á þessu móti,“ segir Vignir Vatnar, þegar fréttamaður náði tali af honum stuttu eftir skákina. Þá hafði hann komið sér upp á hótel og leyfði sér að slaka á. „Ég sá á andstæðingi mínum að hann var ekki par sáttur við stöðuna svo ég leyfði mér að leika áfram. Svo þurfti hann að þráskáka mig mjög snemma til að fá ekki mun verri byrjun,“ sagði Vignir.

„Þetta eru auðvitað góð tíðindi fyrir skákina og flott fyrir hann,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands íslands. „Nú er hann að einhverju leyti kominn upp að hlið þessara alþjóðlegu meistara sem við eigum og farinn að banka á dyrnar í landsliðsflokk á Skákþingi Íslands til að mynda.“

Að sögn Gunnars er mikilvægt að halda sér á jörðinni en með áframhaldandi þjálfun gæti hann orðið sterkur skákmaður. „Nú þarf bara að halda rétt á spöðunum og vera einbeittur. Hann getur orðið góður með réttum aga.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×