Viðskipti innlent

Vilja RÚV áfram á auglýsingamarkaði

Atli Ísleifsson skrifar
Forsvarsmenn einkarekinna fjölmiðla vilja RÚV af auglýsingamarkaði.
Forsvarsmenn einkarekinna fjölmiðla vilja RÚV af auglýsingamarkaði. Vísir/GVA
Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA), Birtingahúsið og MediaCom eru andsnúin því að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði líkt og þrýst hefur verið á og telja að slíkt skref muni skerða möguleika auglýsenda á að ná til neytenda.

Í tilkynningu frá aðilunum kemur fram að saman hafi sjónvarps- og útvarpsstöðvar RÚV afgerandi mesta vikulega dekkun ljósvakamiðlanna og gæti brotthvarf þessara stöðva af auglýsingamarkaði orðið til þess að neytendur verði af mikilvægum upplýsingum um vörur og þjónustu.

Nokkur umræða hefur farið fram um veru RÚV á auglýsingamarkaði í kjölfar áskorunar forsvarsmanna einkarekinna fjölmiðla á Íslandi þar sem þrýst er á ráðherra og Alþingi „að gera nauðsynlegar og tímabærar breytingar á löggjöf til þess að jafna samkeppnisstöðu félaga á íslenskum fjölmiðlamarkaði“. Í áskoruninni er meðal annars lagt til að RÚV verði tekið af auglýsingamarkaði um næstu áramót.

SÍA, Birtingahúsið og Media Com segja að til viðbótar gegni sjónvarpsauglýsingar mikilvægu hlutverki í vörumerkja- og ímyndaruppbyggingu fyrirtækja. „Það yrði erfiðara fyrir þau að byggja upp virði vörumerkja sinna þegar þau ná ekki augum og eyrum jafnmargra. Hætta er á að dregið yrði úr framleiðslu sjónvarpsauglýsinga sem hefði skaðleg áhrif á fyrirtæki og einstaklinga sem hafa tekjur af auglýsingaframleiðslu,“ segir í tilkynningunni.

Þau telja það vera hag íslenskra neytenda að auglýsendur nái til þeirra með hagkvæmum hætti en ekki síður að næg fjölbreytni ríki á auglýsingamarkaði og eðlileg samkeppni þrífist. „Sjónvarp og útvarp eru enn áhrifamiklir auglýsingamiðlar á Íslandi. Fjölmiðlaumhverfið er þó að taka hröðum breytingum sem hefur áhrif á rekstrarumhverfi allra sem með beinum eða óbeinum hætti hafa tekjur af auglýsingum. Samkeppni frá erlendum miðlum er og verður þeim íslensku erfið og mikilvægt að leitað verði leiða til þess að auðvelda íslenskum fjölmiðlum að dafna. Það er auglýsendum og neytendum í hag að það verði gert án þess að taka sjónvarps- og útvarpsstöðvar RÚV af auglýsingamarkaði.“


Tengdar fréttir

Vilja minni umsvif á auglýsingamarkaði

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir tillögur sem fulltrúar einkarekinna fjölmiðla lögðu fram í Fréttablaðinu í gær um breytta löggjöf áhugaverðar. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að draga þurfi úr umsvifum RÚV á auglýsingama






Fleiri fréttir

Sjá meira


×