Viðskipti innlent

Jákvætt að lífeyrissjóðir vilji í stjórn

Ásgeir Erlendsson skrifar
Forstjóri Kauphallarinnar telur átök um stjórnarkjör í HB Granda og VÍS jákvæð merki um að lífeyrissjóðirnir séu að gæta sinna hagsmuna á hlutabréfamarkaði. Upp úr sauð á aðalfundi HB Granda í gær og fresta þurfti stjórnarkjöri þegar Lífeyrissjóður verzlunarmanna vildi koma sínu fólki að í stjórn.

Hörð átök urðu á aðalfundi HB Granda í gærkvöldi þegar núverandi fulltrúar í stjórn fyrirtækisins drógu framboð sín til baka og því gat stjórnarkjör ekki farið fram.

Ákveðið var að fresta aðalfundinum og boða til framhaldsaðalfundar eftir tvær vikur. Lífeyrissjóður verzlunarmanna, sem er næst stærsti hluthafinn í fyrirtækinu, krafðist svokallaðrar margfeldiskosningar með það að markmiði að koma fulltrúa sínum í stjórn en Kristján Loftsson stjórnarformaður HB Granda hefur lýst yfir óánægju sinni með að lífeyrissjóðir eignist stjórnarmann í fyrirtækinu.

Morgunblaðið greindi frá málinu í dag. Stjórnin sagði í yfirlýsingu að hún drægi framboð sitt til baka til að gefa lífeyrissjóðnum tækifæri til að útskýra hvað sjóðurinn væri ósáttur við í rekstri fyrirtækisins. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem aðalfundi er frestað hjá fyrirtæki sem skráð er í Kauphöllinni eftir að stjórnarmenn í Vís drógu framboð sitt til baka með svipuðum hætti í síðasta mánuði.

Páll Harðarson forstjóri Kauphallarinnar segir átökin jákvæð merki um að lífeyrissjóðirnir séu að gæta hagsmuna sinna og almennings

„Lífeyrissjóðirnir eru að gæta sinna hagsmuna á hlutabréfamarkaði með virkari hætti en áður. Það er að mínu viti jákvætt merki. Þeir auðvitað fara með fé almennings og bera ríka skyldu að vera virkir í gæslu þess fjár sem þeir fara með.“

Hvernig mun Kauphöllin skoða mál sem þessi þegar stjórnarmenn draga sig út úr stjórnarkjöri og bjóða sig svo aftur fram?

„Fyrst og fremst munum við fara yfir þetta með tilliti til okkar reglna auðvitað. Þá knýja á um að þær upplýsingar sem við teljum að þurfa að vera fyrir hendi séu þá lagðar fram. Svo munum við beina því til þessara félaga að allar upplýsingar séu uppi á borðum og vísa þá til góðra stjórnarhátta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×