Horfa fyrst á klám fimm ára gömul Birta Björnsdóttir skrifar 5. mars 2016 18:45
Tæplega nítíu og níu prósent drengja í framhaldsskóla hafa skoðað klám og tæplega áttatíu prósent stúlkna. Neyslumynstrið hefur breyst og skoða nú tæpur helmingur drengjanna klám í farsímanum sínum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsókn sem Ástrós Erla Benediktsdóttir gerði fyrir mastersritgerð sína í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Rannsóknin var gerð á 18 til 20 ára framhaldsskólanemum og var markmiðið að fá yfirsýn yfir kynhegðun, kynheilbrigði og klámáhorf framhaldsskólanema. „Hugmyndin var að fá yfirsýn yfir þessa hluti hér á landi. Meðal annars til þess að kanna hvort þörf væri á meiri kynfræðslu, bæði í skólum og í samfélaginu öllu,” segir Ástrós Erla. „Rannsóknin sýndi að klámnotkun er mikil og sama segja sambærilegar rannsóknir. Þetta er því eitthvað sem við þurfum að tala miklu meira um.” Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að marktækt fleiri karlar höfðu séð klám heldur en konur eða 98,9% karla og 72,9% kvenna. Af þeim höfðu 40% karla horft á klám 2-5 sinnum í viku undanfarinn mánuðinn en einugis 2,3% kvenna. Tæp 54% kvenna og 10% karla sögðust ekki hafa horft á neitt klám undanfarinn mánuð. „Foreldrar þurfa að kynna sér þetta betur. Meðal annars vegna þess að í rannsókninni minni kom meðal annars fram að þessi ungmenni höfðu séð klám í fyrsta sinn allt niður í fimm ára gömul. Þetta er rosalega aðgengilegt og því mikilvægt að foreldrar, skólar og samfélagið séu vakandi um þessa hluti,” segir Ástrós. Í rannsókn Ástrósar kom meðal annars í ljós að 90,6% klámnotenda segjast horfa á það á netinu í tölvunni og 40% í farsímanum sínum. „Það er auðvitað ekki gott að ungmenni sem hafa ekki prófað sig áfram í kynlífi horfi á klám og beri sig saman við það sem þar er að gerast,“ segir Ástrós Erla.
Mest lesið Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Verkföll hafin í sex skólum Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni Innlent Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Innlent Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Erlent Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Innlent Segir menntuð fífl hættuleg fífl Innlent Fleiri fréttir Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni „Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Heiða Björg verður borgarstjóri Ögurstund, staða Play og óreyndur rútubílstjóri Hellti kveikjarabensíni yfir mann og hótaði að kveikja í Ökklasnúnum Esjufara komið til bjargar Banaslys á Þingvallavegi Samræði við þrettán ára nauðgun eftir allt saman Nýr borgarstjóri kynntur á morgun Kennarar samþykkja innanhússtillögu Segir menntuð fífl hættuleg fífl Kókaínsmygl systkina og maka þeirra út um þúfur Fleinn rekinn í hjarta Evrópu verði Úkraína beygð í duftið Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Refsing Dagbjartar þyngd verulega Sameinar sýslumenn: Róar taugar starfsmanna og segir ekkert að óttast Sama rúta olli skemmdum á bannsvæði í hádeginu Hugmyndir Þorgríms séu litaðar vanþekkingu og fordómum Segir karla í forréttindastöðu hafa stofnað Háskólann Stórskemmdi grasflötina við Höfða Sjá meira