Lífið

Fengu bókstaflega sjokk þegar þau reyndu að stela síma - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mjög fyndið myndband
Mjög fyndið myndband
Það getur verið erfitt að taka upp vel heppnaða falda myndavél og þarf margt að ganga upp svo að útkoman verði skemmtilegt.

Á YouTube-rásinni Mabe in America sem Tom Mabe heldur úti má sjá mörg skemmtileg myndbönd en nýjasta myndbandið á síðunni er sérstaklega skemmtilegt.

Þar hefur Tom Mabe komið fyrir búnaði í síma sem gefur frá sér rafstuð þegar ýtt er á takka á fjarstýringu. Mabe kom sér fyrir almannafæri og þóttist oftast vera sofandi með símann sér við hlið. Það leið aldrei langur tími þar til að einhver óprúttinn aðili mætti á staðinn og reyndi að stela símanum.

Þá ýtti Mabe einfaldlega á takkann og gaf fólkinu rafstuð. Allt saman náðist þetta á myndband og eru viðbrögð fólksins mjög fyndin en myndbandið má sjá hér að neðan.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×