Enski boltinn

Luiz verður í liði Chelsea gegn Liverpool

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Luiz í leik með Chelsea áður en hann fór til PSG.
Luiz í leik með Chelsea áður en hann fór til PSG. vísir/getty
Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur staðfest að brasilíski miðvörðurinn David Luiz verði í byrjunarliði Chelsea gegn Liverpool annað kvöld.

Luiz mun leysa John Terry af hólmi en Terry meiddist á ökkla í leiknum gegn Swansea um helgina og getur ekki spilað.

Þetta verður fyrsti leikur Luiz með Chelsea eftir að hann var keyptur aftur til félagsins frá PSG.

Chelsea greiddi 30 milljónir punda fyrir leikmanninn sem það hafði selt til PSG á 50 milljónir punda fyrir tveim árum síðan.

Luiz er afar vinsæll á meðal stuðningsmanna Chelsea sem bíða klárlega spenntir eftir því að sjá hann í búningi Chelsea á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×