Viðskipti innlent

Arion banki spáir hærri hagvexti á árinu

Sæunn Gísladóttir skrifar
Á öðrum ársfjórðungi nam vöxtur kortaveltu 12,4 prósent.
Á öðrum ársfjórðungi nam vöxtur kortaveltu 12,4 prósent. Vísir/Vilhelm
Greiningardeild Arion banka hefur fært hagvaxtarspá sína fyrir árið 2016 upp á við, úr 4,3 prósent í mars í 4,9 prósent. Fram kemur í greiningu bankans að aðstæður í efnahagslífinu séu til þess fallnar að auka bjartsýni, atvinnuleysi er með minnsta móti, afnám hafta er komið vel á veg og hagvaxtarhorfur eru betri en í flestum þróuðum ríkjum, svo ekki sé minnst á góðan árangur landsliðanna okkar í fótbolta sem kitlað hefur þjóðarstoltið.

Í byrjun júní birti Hagstofa Íslands landsframleiðslutölur fyrir fyrsta fjórðung þessa árs sem báru þess skýr merki að mikill kraftur er í hagkerfinu um þessar mundir. Hagvöxtur mældist 4,2 prósent á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tíma í fyrra og var þetta sterkasti fyrsti fjórðungur hagvaxtarlega séð síðan 2008.

Af þeim 35 ríkjum sem mynda OECD eru aðeins þrjú ríki sem geta státað af meiri hagvexti en Ísland á fyrsta fjórðungi ársins. Líkt og kom fram þá flaug hagkerfið nokkuð hærra en við reiknuðum með í okkar síðustu hagspá, en að samneyslu undanskilinni vanmátum við alla undirliði landsframleiðslunnar. Nú þegar annar ársfjórðungur er liðinn og hátíðnivísbendingar, s.s. kortavelta og utanríkisverslun, eru byrjaðar að tínast inn höfum við ráðist í að uppfæra hagspá okkar frá því í mars. Hafa ber í huga að ekki er um að ræða nýja hagspá – aðeins uppfærslu fyrir yfirstandandi ár.

Fram kemur í greiningunni að kortavelta geti verið gagnleg vísbending um umsvif í hagkerfinu, en þróun kortaveltu hefur töluvert forspárgildi um þróun einkaneyslu. Á fyrsta ársfjórðungi jókst kortavelta um 11,3 prósent og einkaneysla um 7,1 prósent, sem er mesti einkaneysluvöxtur á einum fjórðungi síðan 2008. Annar ársfjórðungur bætti um betur, en þá nam vöxtur kortaveltu 12,4 prósent. Þessi mikli kortaveltuvöxtur bendir til þess að einkaneyslan sé að gefa enn meira í, og er ein af forsendum þess að við höfum fært einkaneysluspá okkar upp á við.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×