Innlent

Nýlistasafnið, Kling og Bang og Ólafur Elíasson í Marshall-húsið við Grandagarð

Atli Ísleifsson skrifar
Gamla síldarbræðslan við Grandagarð svokallaða hefur einnig gengið undir nafninu Marshall-húsið.
Gamla síldarbræðslan við Grandagarð svokallaða hefur einnig gengið undir nafninu Marshall-húsið. Mynd/Reykjavíkurborg

Nýlistasafnið, Kling og Bang og vinnustofa og sýningarrými Ólafs Elíassonar munu næsta haust flytja í Marshall-húsið, eða Gömlu síldarbræðsluna, sem stendur við Grandagarð.



Borgarráð samþykkti í gær að heimila Reykjavíkurborg að gera samning við HB Granda um leigu á húsnæðinu til fimmtán ára og mun borgin framleigja fyrrnefndum aðilum. Á sama tíma verður opnaður veitingastaður á jarðhæð hússins með sérstaka áherslu á sjávarfang.



Fagnaðarefni

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir það vera mikið fagnaðarefni að samstarf hafi tekist um öfluga menningarstarfsemi í Marshall húsinu.



„HB Grandi mun ráðast í endurgerð hússins af myndarbrag þannig að húsið verður sannkölluð borgarprýði. Reykjavíkurborg kemur að málinu með því að leigutryggja verkefnið. Það sem skiptir þó mestu máli er að náðst hefur samstarf við þrjá spennandi og kraftmikla samstarfsaðila á myndlistarsviðinu sem áttu ákveðið frumkvæði að verkefninu. Það mun tryggja að Marshall húsið verður eitt mest spennandi myndlistar- og menningarhús borgarinnar og þó víðar væri leitað,“ segir Dagur.

Svona lítur húsið út að innan á annarri hæð en þar mun verða umfangsmikil listastarfsemi. Á fyrstu hæð verður hins vegar veitingahús sem sérhæfir sig í sjávarfangi.Mynd/reykjavíkurborg

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að árið 1948 hafi Reykjavíkurbær og hlutafélagið Kveldúlfur stofnað með sér sameignarfélagið Faxa sf. um byggingu nýrrar síldarverksmiðju í Örfirisey. „Bygging verksmiðjunnar hófst árið 1948 og var að hluta fjármögnuð með Marshall aðstoð Bandaríkjanna eftir stríð og er nafn hússins því þaðan komið. Verksmiðjan var í notkun í um hálfa öld en hefur staðið auð undanfarin ár,“ segir í tilkynningunni.



Nánar má lesa um málið á vef Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×