Innlent

Telur Bláa lónið öruggt vegna varnar­garðanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Drónamyndir af hrauninu og Bláa lónið í bakgrunni.
Drónamyndir af hrauninu og Bláa lónið í bakgrunni. Vísir/vilhelm

Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa lóninu segir varnargarða umhverfis baðlónið vinsæla verja alla starfsemi félagsins. Hraun hefur náð bílastæði lónsins sem er utan varnargarða.

Eldgos hófst á tólfta tímanum í gærkvöldi, það sjöunda á árinu og það tíunda frá upphafi goshrinunnar í mars 2021. Sprungan nýja liggur í norðaustur austan Grindavíkurvegar en hraun hefur flætt vestur yfir Grindavíkurveg og náði inn á bílastæði Bláa lónsins upp úr hádegi.

Vísir/vilhelm

„Varnargarðarnir eru að verja starfsemina að öllu leyti,“ segir Helga sem er staðsett í Svartsengi innan varnargarða. Þannig er hún í nágrenni hraunflæðisins þó hún sjái það ekki með berum augum vegna varnargarðanna.

Vísir/vilhelm

Eins og flæðið hafi verið megi reikna með því að hraunið fari í gengum bílastæði Bláa lónsins. Eldur hefur kviknað í gámum á bílastæðinu sem notaðir hafa verið tímabundið sem þjónustuhús. Sem salerni og til að geyma ferðatöskur erlendra ferðamanna sem eru langstærsti hluti gesta á degi hverjum.

Vísir/vilhelm

„Það er engin eiginleg starfsemi eða hlutir þar inni.“

Helga jánkar því að hjartslátturinn hjá forsvarsfólki Bláa lónsins sé stöðugur þökk sé varnargörðunum.

Öll nýjustu tíðindi má finna í vaktinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×