Lífið

Tólf ára stelpa sló í gegn í Britain´s Got Talent

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Beau Dermott átti ekki von á því að Amanda Holden myndi ýta á gullhnappinn.
Beau Dermott átti ekki von á því að Amanda Holden myndi ýta á gullhnappinn.
Hin tólf ára gamla Beau Dermott sló í gegn í Britain’s Got Talent þegar tíunda þáttaröð hófst í gær. Söngur hennar þótti svo góður að dómarinn Amanda Holden ákvað að ýta á gullhnappinn að flutningi loknum.

Dermott virtist vera taugahrúa áður en hún hóf upp raust sína. Lagið sem varð fyrir valinu heitir Defying Gravity og er úr söngleiknum Wicked og var flutningurinn nánast óaðfinnanlegur.

„Þegar ég er á sviði þá líður mér eins og ekkert sé ómögulegt og að ég geti verið ég sjálf,“ sagði Dermott áður en hún steig á svið.

Frammistöðu Dermott má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×