Björgunarstarfi er lokið í Berlín nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 19. desember 2016 19:43 Fjölmennt lögreglulið er á vettvangi á Bretscheidplatz-torgi. vísir/epa
Flutningabíll keyrði inn í jólamarkað á Breitscheidplatz torgi í Berlín á áttunda tímanum í kvöld með þeim afleiðingum að níu létust og 45 særðust. Markaðurinn er með stærri jólamörkuðum í Berlín en hann er staðsettur á Breitscheidplatz-torgi steinsnar frá Kurfürstendamm, stærstu verslunargötu borgarinnar. Lögregluyfirvöld í Berlín hafa staðfest að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Í flutningabílnum voru tveir menn en sá sem sat í farþegasætinu lést meðan á voðaverkinu stóð. Ökumaður bifreiðarinnar komst lífs af og hefur hann verið handtekinn.Sjá einnig: Utanríkisráðuneytið hvetur Íslendinga í Berlín til þess að láta vita af sérSamkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu og sendiherra Íslands í Þýskalandi hafa ekki borist fregnir af því að neinir Íslendingar séu í hópi særðra. Yfirvöld hafa hvatt borgarbúa til þess að halda sig innandyra í kvöld. Samkvæmt lögregluyfirvöldum er björgunarstarfi á vettvangi lokið en 45 voru fluttir á sjúkrahús í kjölfar árásanna. Rannsókn málsins er þegar hafin og staðfest hefur verið að númeraplata bifreiðarinnar sem notuð var við ódæðið er pólsk. Talið er að flutningabílnum hafi verið stolið af byggingasvæði í Póllandi. Götunni Rankestraße hefur verið lokað vegna rannsóknarinnar og hafa lögregluyfirvöld staðfest að þar sé verið að rannsaka möguleg sönnunargögn.Fréttin var síðast uppfærð kl. 23:50Grunur leikur á að bifreiðinni hafi verið stolið frá Póllandivísir/epa
Hryðjuverk í Evrópu Tengdar fréttir Utanríkisráðuneytið hvetur Íslendinga í Berlín til að láta vita af sér Engar upplýsingar hafa borist um að Íslendingar séu á meðal særðra eða látinna. 19. desember 2016 22:16 Mest lesið Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Innlent Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Innlent Fleiri fréttir Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sjá meira
Utanríkisráðuneytið hvetur Íslendinga í Berlín til að láta vita af sér Engar upplýsingar hafa borist um að Íslendingar séu á meðal særðra eða látinna. 19. desember 2016 22:16