Enski boltinn

Payet gælir við Arsenal: „Ég myndi njóta mín í þessu liði“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Payet er algjör gullfótur.
Payet er algjör gullfótur. vísir/getty
Dimitri Payet, leikmaður West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur endalaust verið orðaður við Arsenal undanfarin misseri.

Þessi öflugi franski miðjumaður sló í gegn á fyrsta ári sínu í úrvalsdeildinni og var svo virkilega góður með franska landsliðinu á EM í sumar. Arsene Wenger er sagður mjög áhugasamur um að fá hann yfir til sín.

„Ég les alltaf að Wenger telur mig vera púslið sem vantar hjá Arsenal en hann hefur aldrei sagt það við mig,“ segir Payet í viðtali við RMC.

„Við erum búnir að fá okkur fimm eða sex mörk á heimavelli gegn Arsenal síðast. Ég hugsa alveg þegar ég horfi á Arsenal, sem tekknískur leikmaður, að ég myndi njóta mín í þessu liði.“

West Ham er í basli í deildinni með 19 stig í 13. sæti og vill Payet einbeita sér að því að hjálpa Hömrunum. „Staðan á liðinu hefur áhrif á mig en ég er í baráttu með mínu félagi og gef West Ham allt til að koma því úr þessari klípu. Ég loka samt engum dyrum,“ segir Dimitri Payet.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×