Erlent

Þrír særðir í skotárás í Sviss

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Árásin átti sér stað í Zurich í Sviss.
Árásin átti sér stað í Zurich í Sviss. visir/googlemaps
Þrír eru særðir eftir skotárás í borginni Zurich í Sviss. Þetta kemur fram í frétt BBC. Svissneskir fjölmiðlar hafa staðfest að hinir særðu hafi fundist í götunni Eisgasse í grennd við bænahús múslima, ekki langt frá aðallestarstöð borgarinnar. Hinir særðu eru allir fullorðnir. 

Samkvæmt svissneskum fjölmiðlum flúði árásarmaðurinn af vettvangi og er hann enn ófundinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×