Neyðarástandi lýst yfir á Ítalíu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 26. ágúst 2016 07:54 Vonir um að fólk finnist á lífi í rústunum fara hratt dvínandi. vísir/epa
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í þeim héruðum sem verst urðu úti í jarðskjálftunum á Ítalíu á miðvikudag. Vonir um að fólk finnist á lífi í rústunum fara hratt dvínandi, að sögn þarlendra yfirvalda. Að minnsta kosti tvö hundruð og fimmtíu eru látnir og á fjórða hundrað eru slasaðir. Þá er fjölda fólks enn saknað og hafa björgunaraðilar unnið sleitulaust að því að reyna að finna fólk í rústunum. Nokkur hundruð eftirskjálftar hafa fylgt á eftir jarðskjálftanum á miðvikudag, sem var upp á 6,2 stig, og hefur það hamlað björgunarstarfi nokkuð, enda geta eftirskjálftarnir valdið mikilli hættu. Þegar rökkva tekur eru flóðljós notuð til að lýsa upp rústirnar og þá hefur verið farið fram á að sem mest þögn ríki svo hægt sé að heyra í fólki sem þarf á aðstoð að halda. Um fimm þúsund manns taka þátt í leitinni. Gríðarleg eyðilegging blasir við og hét forsætisráðherra landsins, Matteo Renzi, því í gær að fimmtíu milljónum evra verði varið í uppbyggingarstarf á skjálftasvæðunum. Yfirvöld hafa þó mætt nokkurri gagnrýni yfir að byggingarstaðlar séu ekki nægilega strangir á þessum slóðum, þar sem skjálftar eru nokkuð algengir.
Tengdar fréttir Gríðarlegar skemmdir eftir jarðskjálfta Jarðskjálftinn á Ítalíu kostaði meira en 120 manns lífið hið minnsta, en óttast var að tala látinna ætti eftir að hækka. Margra var enn saknað í gær. Leitað var í rústum húsa í von um að finna fólk þar á lífi. Hundruð eftirskj 25. ágúst 2016 07:00 Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Nú beinast öll spjót að bönkunum Innlent Bifreið í ljósum logum við Stuðlaháls Innlent Höfum ekki efni á svona stórkarlalegri Ölfusárbrú Innlent Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Erlent Mikil umferð vegna áreksturs í Kópavogi Innlent Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Erlent Óvenjulegt ættarmót við Snorrabraut Innlent Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Erlent Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Fleiri fréttir Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Sjá meira
Gríðarlegar skemmdir eftir jarðskjálfta Jarðskjálftinn á Ítalíu kostaði meira en 120 manns lífið hið minnsta, en óttast var að tala látinna ætti eftir að hækka. Margra var enn saknað í gær. Leitað var í rústum húsa í von um að finna fólk þar á lífi. Hundruð eftirskj 25. ágúst 2016 07:00