Fótbolti

Barton fær ekki að mæta á æfingar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Joey Barton.
Joey Barton. vísir/getty
Vandræðagemsinn Joey Barton er nú búinn að gera allt vitlaust hjá félagi sínu, Glasgow Rangers.

Barton lenti í deilu við liðsfélaga sinn, Andy Halliday, á liðsfundi í vikunni og gekk allt of langt. Þá voru leikmenn Rangers að greina 5-1 tapið gegn Celtic um síðustu helgi.

„Sumt af því sem ég sagði var óviðeigandi og fyrir það biðst ég afsökunar,“ skrifaði Barton á Twitter og bætti svo við að ekki hefði komið til handalögmála.

„Engu að síður var sumt af því sem ég sagði langt yfir strikið.“

Stjóri félagsins, Mark Warburton, henti Barton í skammarkrókinn og hann má ekki mæta á æfingu aftur fyrr en á mánudag.

„Ég sé eftir hegðun minni og ég mun leggja mitt af mörkum til að koma liðinu aftur á beinu brautina. Ég get aftur á móti ekki beðist afsökunar á því að vera ekki sama um að tapa leikjum og vilja gera betur á vellinum fyrir Rangers.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×