Innlent

Fjárleysið þegar farið að bitna á gæðum menntunar

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Jón Atli Benediktsson segir stöðuna þannig að ekki sé hægt að sinna nemendum með fullnægjandi hætti. Farið sé að kenna í stærri hópum og að ekki sé hægt að sinna einstaklingskennslu nægilega vel.
Jón Atli Benediktsson segir stöðuna þannig að ekki sé hægt að sinna nemendum með fullnægjandi hætti. Farið sé að kenna í stærri hópum og að ekki sé hægt að sinna einstaklingskennslu nægilega vel. vísir/anton brink/
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir viðvarandi fjárskort þegar farinn að bitna á kennslu nemenda og þar af leiðandi gæðum menntunarinnar. Þrátt fyrir að Háskóli Ísland standi vel gagnvart öðrum skólum þá sé það ljóst að hann sé farinn að dragast aftur úr.

„Við sjáum það á tölunum að við erum aðeins að dragast niður. Það er áhyggjuefni vegna þess að þó við höfum verið að bæta okkur í vísindaþættinum ár frá ári þá eru hinir skólarnir að bæta sig meira og það þýðir að þeir fara fram úr okkur,“ sagði Jón Atli í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun og vísaði til nýrra niðurstaðna þess efnis að Háskóli Íslands er á meðal 250 bestu háskóla í heimi.

„Þjóðirnar í kringum okkur hafa verið að setja meira inn í háskólamenntunina og við verðum að vera samkeppnishæf.“

Jón Atli segir Ísland hálfdrætting á við Norðurlöndin og að nauðsynlegt sé að bætt verði úr ástandinu. „Ef hann fæst ekki [fjárstuðningur] þá er mögulegt að Háskóli Íslands geti skrölt eitthvað aðeins áfram á næsta ári. En þá verður vandinn orðinn enn þá meiri og þessari þróun þarf að snúa við. [...] Ef það er þannig að háskólakerfið er stanslaust undirfjármagnað þá er ekki aðlaðandi fyrir fólk að koma hingað að starfa. Það hefur áhrif á íslenskt atvinnulíf og grefur undan því.“

Aðspurður segir hann það geta komið til þess að fækka þurfi greinum í háskólanum. „Við reynum að komast hjá því að hugsa um eitthvað svoleiðis. En þegar þú spyrð um raunveruleg áhrif, þegar við getum ekki sinnt öllum sem við viljum sinna vegna þess að fjárframlögin eru ekki næg þá verðum við að einfalda kerfið. Við verðum að kenna í enn stærri hópum og verðum mögulega að sameina greinar og eitthvað þess háttar. Þetta eru raunverulegar hættur og þetta er ekkert grín. Við erum bara hálfdrættingar á við Norðurlöndin í framlögum á hvern nemanda í háskóla.“

Hlusta má á viðtalið allt í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×