Viðskipti innlent

Framkvæmdastjóri Hafnarness: Salan framkvæmd til að halda rekstri áfram

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ólafur segir það lágmark að menn kynni sér málavexti áður en þeir tjá sig um málið.
Ólafur segir það lágmark að menn kynni sér málavexti áður en þeir tjá sig um málið. Vísir
„Það er sárt að sjá hvernig sumir vilja mála ljóta mynd af [sölunni] og setja [hana] í afskræmdan búning. Líkt og ég hef komið hér inn á þá voru þetta erfið spor að taka og okkur var hugsað til starfsfólksins og samfélagsins,“ skrifar Ólafur Hannesson, framkvæmdastjóri Hafnarnes VER hf., í aðsendri grein á Hafnarfréttum.

Ólafur Hannesson, framkvæmdastjóri Hafnarness VER.
Undir lok síðasta mánaðar bárust fregnir af því að HB Grandi hefði keypt aflahlutdeildir fyrirtækisins, sem staðsett er í Þorlákshöfn, í bolfiski. Þar ræðir um tæplega 1.600 þorskígildistonn sem fyrirtækið hyggst flytja til Vopnafjarðar til að tryggja bolfisksvinnslu þar.

Salan átti sér stað vegna skuldar Hafnarness við viðskiptabanka sinn. Sú skuld var tilkomin vegna kaupa á aflaheimildum árið 2006. „Salan nú var framkvæmd til að eiga kost á að halda áfram rekstri fyrirtækisins. Þetta voru gífurlega þung og sár spor fyrir okkur, enda hafa aðstandendur félagsins stundað útgerð í 40 ár,“ skrifar Ólafur. 

Í kjölfar brotthvarfs kvótans úr byggðarlaginu sendi bæjarstjórn Ölfuss meðal annars frá sér ályktun auk þess að bæjarstjórinn Gunnsteinn Ómarsson sagði sína skoðun á kaupunum. 

Að mati Ólafs er framganga bæjarstjórnar ósvífin og dónaskapur gagnvart fyrirtækinu. Að hans mati ættu bæjarstjórnarmenn að einbeita séra ð því að styðja við atvinnurekstur í bænum og þá ekki síst þegar fyrirtæki eru að reyna að vinna sig úr erfiðri stöðu. 

„Að láta í veðri vaka að þetta hafi verið auðveld ákvörðun hjá okkur er í besta falli ósmekklegt. Fyrirtækið og aðstandendur þess bera sterkar taugar til sinnar heimasveitar og hafa reynt að láta gott af sér leiða. Síðustu misseri hafa verið mjög erfið og ákvörðunin um söluna var ekki tekin af léttúð, heldur illri nauðsyn. Þetta var nauðsynlegt skref til þess að geta haldið áfram rekstri til langframa og halda sem flestum í vinnu til lengri tíma litið,“ ritar Ólafur. 

Þá þykir honum einnig ómaklega vegið að fyrirtækinu með þeirri fullyrðingu sveitarstjórnarmanna að þeir hafi fyrst frétt af málinu í fjölmiðlum. Þeim hefði verið í lófa lagið að heyra í aðstandendum Hafnarness eða að kíkja í heimsókn í fyrirtækið. 

„Það þykir mér ekki til eftirbreytni, lágmark er að menn hafi reynt að kynna sér málin áður en þeir fara að tjá sig um þau í fjölmiðlum,“ segir í greininni. Hana má lesa í heild sinni hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×