Lífið

Ætlaði að góma kærastann við framhjáhald en hann sá við henni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kelly var tekinn eftir allt saman.
Kelly var tekinn eftir allt saman.
Í dag eru nánast til raunveruleikaþættir um hvað sem er. Einn þeirra er To Catch a Cheater sem lýsir sér þannig að fólk getur athugað hvort makar þeirra séu að halda framhjá þeim með ýmsum brögðum.

Kelly grunaði greinilega að David væri að halda framhjá henni og því var sett upp falinn myndavél þar sem hann var settur í erfiðar aðstæður með annarri konu.

Það sem Kelly vissi ekki að David var með í planinu öllu og var leikið vel á hana. Til að gera myndbandið hér að neðan enn skemmtilegra verður ekki farið nánar út í hvernig það þróast. En það endar á mjög óvæntan hátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×