Enski boltinn

Pogba á leiðinni til Manchester

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pogba fagnar á EM í sumar.
Pogba fagnar á EM í sumar. vísir/getty
Franski landsliðsmaðurinn Paul Pogba er nú staddur í flugvél á leið til Manchester.

Þar mun hann fara í ítarlega læknisskoðun hjá Man. Utd áður en formlega verður gengið frá kaupum félagsins á honum frá Juventus.

Bæði Juventus og Man. Utd staðfestu í gær að Pogba væri á leiðinni í læknisskoðun hjá United. Samkvæmt heimildum Sky gæti læknisskoðunin tekið tvo daga eða jafnvel lengur.

Talið er að Man. Utd muni greiða Juventus 90 milljónir punda fyrir leikmanninn og Pogba yrði þá dýrasti leikmaður allra tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×