Erlent

25 manns létust í sprengingu í Kairó

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Kirkjan var mikið skemmd eftir árásina.
Kirkjan var mikið skemmd eftir árásina. Vísir/EPA
Sprenging varð í höfuðborg Kairó í morgun með þeim afleiðingum að 25 óbreyttir borgarar létust og 49 manns særðust. Sunday Express greinir frá.  

Sprengjan sprakk nærri kirkju og beindist árásin að minnihlutahóp kristinna í landinu. Samkvæmt upplýsingum yfirvalda er talið að kvenmaður hafi skilið eftir tösku sína í kirkjunni sem fyllt var með sprengiefnum.

Meirihluti fórnarlamba voru konur og börn sem stödd voru á bænastund í viðkomandi kirkju. Rannsókn málsins er á frumstigi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×