Búnaðurinn sem hefði getað komið í veg fyrir lestarslysið Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. september 2016 20:50 Einn lést og yfir hundrað slösuðust. Vísir/Getty
Lestin sem skall á lestarstöðinni í Hoboken í New Jersey í Bandaríkjunum var ekki búinn svokölluðum PTC-búnaði sem setja átti í allar lestir í Bandaríkjunum fyrir árslok 2015. Búnaðurinn grípur inn í þegar lestir ferðast of hratt miðað við aðstæður. Lestarfyrirtækið sem rekur lestina sem um ræðir hótaði að hætta rekstri yrðu lögum um búnaðinn framfylgt. Slysið átti sér stað í morgun þegar farþegalest virðist hafa keyrt á fullum hraða inn í lestarstöðina. Einn lést í slysinu og 108 eru slasaðir, þar af nokkrir alvarlega. Lestarstöðin stórskemmdist í slysinu en um 50 þúsund manns fara um stöðina á hverjum degi. Óvíst er um orsakir slyssins en líklegt er að um mannleg mistök hafi verið að ræða. Lestarstjóri lestarinnar slasaðist alvarlega en starfar þó með yfirvöldum svo koma megist að því hvað hafi valdið slysinu.Á vef BBC er vakin athygli á því að lestin var ekki búinn svokölluðum PTC-búnaði sem stendur fyrir Positive Train Control. Er hann hannaður til þess að grípa inn í þegar lestin ferðast of hratt miðað við aðstæður.Hótuðu að hætta rekstri og fengu frest Árið 2008 samþykkti bandaríska þingið lög þess efnis um að búnaðinum skyldi komið fyrir í öllum lestum í Bandaríkjunum fyrir árslok 2015. Fæstum lestarfyrirtækjum tókst þó að mæta þessum skilyrðum þingsins en kerfið er nokkuð flókið og dýrt að setja upp. Voru lestarfyrirtæki í Bandaríkjunum mörg hver á móti kerfinu og hótuðu nokkur, þar á meðal New Jersey Transit, sem rekur lestina sem rakst á lestarstöðina í morgun, að hætta rekstri yrði lögunum framfylgt. Bandaríska þingið ákvað því að framlengja frestinn til ársins 2018 auk þess sem að fyrirtækin gátu fengið tveggja ára frest til viðbótar til að prófa búnaðinn.Líkt og sjá má er lestarstöðin mikið skemmd.Vísir/GettyÍ New Jersey-ríki var stefnt að því að ná þessu markmiði og koma búnaðinum fyrir í öllum lestum í ríkinu fyrir árslok 2018. Samkvæmt nýlegri rekstrarskýrslu New Jersey Transit kemur þó fram að fyrirtækið hafi ekki sett búnaðinn í neina af sínum 440 lestum og að enginn starfsmaður fyrirtækisins hafi fengið þjálfun í að nota búnaðinn. Lestaröryggi í Bandaríkjunum þykir áfátt sé miðað við Evrópu en sjálfvirkir búnaðir á borð við PCT-búnaðinn hafa lengi verið í notkun í lestarkerfum Evrópu. Nokkur alvarleg lestarslys hafa orðið í Bandaríkjunm að undanförnu, það alvarlegasta í maí 2015 þegar átta létust og 200 slösuðust í Pennsylvaniu þegar lest fór út af sporinu. PCT-búnaðurinn notast við wifi og GPS-hnit til þess að hafa samskipti við stjórnstöðvar. Líkt og áður segir grípur hann inn í aðstæður þegar lestin ferðast of hratt. Er hann ætlaður til þess að koma í veg fyrir mannleg mistök. Hér að neðan má sjá stutt skýringarmyndband um hvernig búnaðurinn virkar.
Mest lesið Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Fleiri fréttir Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Sjá meira