Kallað eftir umbótum vegna árásanna í París Samúel Karl Ólason skrifar 5. júlí 2016 08:40 Hermenn á gangi um Nice. Vísir/EPA
Frönsk þingnefnd hefur kallað eftir umbótum hjá leyniþjónustum Frakklands í kjölfar hryðjuverkaárásanna í París í fyrra. Meðal aðgerða sem grípa eigi til er að sameina nokkrar stofnanir ríkisins í eina stofnun sem beitt verði til varna gegn hryðjuverkum. Þá dregur nefndin í efa að áframhaldandi viðbúnaðarstig öryggisstofnana í Frakklandi auki öryggi þar. 147 manns létu lífið í árásum í janúar og í nóvember í fyrra sem sem gerðar voru af vígamönnum Íslamska ríkisins, eða af einstaklingum hliðhollum samtökunum.Georges Fenech, formaður þingnefndarinnar, sagði ljóst að Frakkar hafi ekki verið reiðubúnir. Þingnefndin fundaði í 200 klukkustundir og tók 190 viðtöl við rannsóknina en niðurstöður hennar voru birtar í dag. Fenech, sagði nauðsynlegt að Frakkar yrðu metnaðarfyllri í upplýsingaöflun vegna alþjóðlegrar hryðjuverkastarfsemi. Meðal tillagna er að stofna hryðjuverkamiðstöð ríkisins með sameinungu stofnanna. Til mark um óhagkvæmni hryðjuverkavarna í Frakklandi bentu þingmenn á að á ferðalögum sínum til Ísrael, Grikklands og Bandaríkjanna gátu forsvarsmenn leyniþjónustna þar ekki bent á hver færi fyrir baráttunni gegn hryðjuverkum í Frakklandi. Öryggisaðilar í Frakklandi hafa verið á hæsta viðbúnaðarstigi um mánaða skeið og hafa meðal annars verið um sex til sjö þúsund hermenn á götum borga þar í landi. Lögregla hefur ráðist til atlögu á þúsundir heimila og hundruð hafa verið handtekin. Þingnefndin dregur í efa að það hafi aukið öryggi íbúa. Þá sérstaklega til lengri tíma.
Mest lesið Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Innlent Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Erlent Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Innlent Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Innlent 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Erlent Féll af steini við Seljalandsfoss Innlent Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Erlent Þrír í haldi í fíkniefnamáli Innlent Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“ Innlent Fleiri fréttir 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Sjá meira