Erlent

Fórnarlambi hópnauðgunar nauðgað aftur af sömu mönnunum

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá mótmælum vegna nauðgana í Indlandi.
Frá mótmælum vegna nauðgana í Indlandi. Vísir/EPA
Ung indversk kona hefur sakað fimm menn um að hafa nauðgað sér í síðustu viku. Það eru sömu mennirnir og hún stendur nú í málaferlum fyrir að hafa nauðgað sér fyrir þremur árum síðar. Konan fannst nærri dauða en lífi í runna á miðvikudaginn í bænum Rohtak í norðurhluta Indlands.

Hún segir mennina fimm hafa neytt sig upp í bíl þar sem þeir hafi nauðgað henni og reynt að kyrkja hana.

„Ég var á leiðinni úr skólanum þegar ég sá þá,“ er haft eftir henni á vef BBC. „Þetta voru sömu fimm mennirnir. Ég var mjög hrædd. Þeir neyddu mig inn í bíl og reyndu að kyrkja mig. Þeir sögðust ætla að drepa pabba minn og bróðir.“ Stúlkan og fjölskylda hennar tilheyra lægstu stétt Indlands, sem áður var kölluð „Hinir ósnertanlegu“

Blaðamaður BBC segir mikla reiði í Indlandi vegna málsins. Nærri því fjögur ár eru liðin frá því að 23 ára konu var nauðgað í rútu í Delhi. Hún var barin og henni var misþyrmt svo illilega að hún dó. Málið vakti mikla reiði í landinu og vakti athygli á umfangi kynferðisglæpa í Indlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×