Enski boltinn

Kone gerði langan samning við Sunderland

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kone í leik með Sunderland.
Kone í leik með Sunderland. vísir/getty
Þó svo það sé allt í rugli hjá Sunderland þá hefur varnarmaðurinn Lamine Kone ákveðið að framlengja við félagið og það til fimm ára.

Þessi 27 ára gamli landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar vildi komast frá félaginu í síðasta mánuði og var þá sterklega orðaður við Everton.

Eitthvað mikið hefur breyst á síðustu vikum þar sem hann sér framtíð sína hjá félaginu næstu árin.

Hann kom til félagsins frá franska liðinu Lorient í janúar. Hann átti stóran þátt í því að Sunderland hékk uppi í úrvalsdeild á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×