Fótbolti

Pirlo fær rauðvínsskó

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Andrea Pirlo.
Andrea Pirlo. vísir/getty
Nike er búið að framleiða takkaskó í rauðvínslit. Það er gert til þess að heiðra Ítalann Andrea Pirlo.

Pirlo er mikill rauðvínsmaður og því þykir Nike eðlilegt að hann spili í rauðvínsskóm.

Það er ekki bara að skórnir séu í rauðvínslit heldur er kassinn utan um skóna í stíl við kassa utan af rauðvíni.

Pirlo vann á vínekru sem unglingur en á núna, og rekur, vínfyrirtæki fjölskyldu sinnar á Ítalíu.

mynd/nike football



Fleiri fréttir

Sjá meira


×