Viðskipti innlent

Tap Kjarnans tvöfaldast

Hafliði Helgason skrifar
Þórður Snær Júlíusson er ritstjóri Kjarnans.
Þórður Snær Júlíusson er ritstjóri Kjarnans. Vísir/Valgarður
Vefmiðillinn Kjarninn tapaði 16,6 milljónum króna á síðasta ári samanborið við 8,3 milljónir króna árið á undan.

 

Samkvæmt samandregnum ársreikningi Kjarnans voru eignir 15,7 milljónir króna og eigið fé 12,5 milljónir króna, en meðal eigna er skatta inneign upp á 6 milljónir króna og eignfærður hugbúnaður upp á ríflega fjórar milljónir króna.

Hlutafé Kjarnans var aukið á vormánuðum þessa árs, en handbært fé í lok síðasta árs var 2,7 milljónir króna, en var tæpar 27 milljónir króna árið áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×