Innlent

Leggja til að Einar K. Guðfinnsson verði stjórnarformaður Landssambands fiskeldisstöðva

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Einar K. Guðfinnsson var forseti Alþingis á nýliðnu kjörtímabili.
Einar K. Guðfinnsson var forseti Alþingis á nýliðnu kjörtímabili. vísir/Gva
Stjórn Landssambands fiskeldisstöðva (LF) samþykkti samhljóða á fundi í gær að leggja til við aukaaðalfund sambandsins að Einar Kristinn Guðfinnsson, fyrrum alþingismaður, verði kjörinn í stjórn sambandsins og taki við formennsku i stjórn þess. Aukaaðalfundur LF verður haldinn 24. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórninni.

Einar K. Guðfinsson lét af þingmennsku við alþingiskosningarnar í síðasta mánuði eftir óslitna þingsetu frá árinu 1991 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var sjávarútvegsráðherra á árunum 2005-2007 og ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála 2007-2009.

Í máli Einars á stjórnarfundi LF í gær kom fram að honum þætti þa ð spennandi að fá tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun í sjávarútvegi.

„Ég hef ávallt litið á mig sem erindreka fjölþættra atvinnutækifæra í landsbyggðunum og sem stjórnarformaður LF fæ ég kærkomið tækifæri til þess að halda þeirri vegferð áfram. Ég er sannfærður um að hægt sé að vinna að uppbyggingu fiskeldis í sátt við umhverfi og lífríki náttúrunnar og hef skynjað mikinn metnað hjá fiskeldisfólki á því sviði. Fiskeldi á Íslandi er á ákveðnum tímamótum. Þegar hafa verið lagðir miklir fjármunir í uppbyggingu þess með góðum árangri. Framundan er frekari uppbygging til hagsbóta fyrir þjóðarbúið allt. Það er áhugavert að þessi uppbygging fer að lang mestu leyti fram á landsbyggðinni og þá ekki hvað síst í byggðarlögum sem hafa háð erfiða varnarbaráttu undanfarin ár,“ segir Einar K. Guðfinnsson.

Í tilkynningunni segir að Einar K. telji einnig nauðsynlegt að skapa vel menntuðu fólki aukin atvinnutækifæri og búsetuskilyrði á landsbyggðinni.

„Það er svo ekki síður brýnt að eiga náið og gott samstarf við stjórnvöld og eftirlitsstofnanir um þróun greinarinnar og stuðla að góðri samvinnu við landeigendur og veiðiréttarhafa um vernd og viðgang villtra laxastofna. Vonandi verður unnt að skapa vettvang þar sem allir hagsmunaaðilar sjá sér hag í að snúa bökum saman og standa þannig sem best að uppbyggingu fiskeldisins. Að því vilja fiskeldismenn vinna og þess vegna er það í senn sómi og tilhlökkunarefni fyrir mig að slást í þann hóp.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×