Innlent

Stefán Máni handtekinn við Blönduós

Jakob Bjarnar skrifar
Stefán Máni lét sér hvergi bregða, játaði undanbragðalaust en brotið kostaði 15 þúsund krónur og þrjá punkta.
Stefán Máni lét sér hvergi bregða, játaði undanbragðalaust en brotið kostaði 15 þúsund krónur og þrjá punkta. tómas
Stefán Máni rithöfundur var að aka suður á bóginn nú áðan frá Akureyri. Hann var gripinn fyrir fyrir að fara yfir á rauðu ljósi af Blönduóslöggunni.

„Við erum komnir úr löggubílnum,“ segir Tómas Hermannsson útgefandi Stefáns Mána sem er með honum í för. En Vísir náði tali af þeim félögum þar sem þeir voru að koma niður af Holtavörðuheiðinni.

„Auðvitað var hann að keyra. Hann fór yfir á rauðu. Það voru framkvæmdir þarna við Blönduós,“ segir Tómas. Og bætir því við að löggan hafi verið hress en þó ekki kát í fyrstu, og sögðu við Stefán Mána: Þú áttar þig á því að þú keyrðir yfir á rauðu ljósi? En hann fór hins vegar refjalaust yfir í lögreglubílinn og játaði allt á sig. Undanbragðalaust. Og útgefandinn skar hann úr snörunni. Með kortinu. Þetta kostaði fimmtán þúsund kall og þrjá punkta,“ segir Tómas.

Glæpasagnahöfundurinn Stefán Máni segir að nú hafi komið sér vel að vera góðkunningi lögreglunnar.tómas
„Það kom sér vel að vera góðkunningi lögreglunnar,“ bætir glæpasagnahöfundurinn Stefán Máni við. Þeir eru að ferðast í snarvitlausu veðri en í bók Stefáns Mána, Grimmd, er einmitt fjallað um bílaeltingaleik norður á land. Tómas segir að sér hafi ekki orðið um sel þegar Stefán Máni hafði orð á því að aðstæður minntu á atriði úr Grimmd.

Þeir Tómas og Stefán Máni voru að koma frá Akureyri þar sem þeir voru að samfagna með Arnari Má Arngrímssyni sem hlaut í síðustu viku Norðurlandaráðsverðlaun fyrir bók sína Sölvasaga unglings. En Tómas í Sögum gefur hana einmitt út líka. Og fóru svo að sjá Baraflokkinn á Græna hattinum. En, lentu sem sagt í þessum hremmingum á heimleiðinni.

Stefán Máni var að senda frá sér nýja bók, þá fjórðu sem fjallar um lögreglumanninn Hörð Grímsson. Hún heitir Svarti galdur og hefur hún þegar vakið mikla athygli og jafnvel óhug því kápan er eftiröpun á hinni helgu bók, sem sagt biblíunni og segir Tómas að ýmsum hafi brugðið í brún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×