Innlent

Slasaðist alvarlega í bílslysi á Suðurlandsvegi

Birgir Olgeirsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar. Vísir/vilhelm
Einn var fluttur á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæsu Íslands eftir árekstur tveggja bíla við Þórsmerkurafleggjara á Suðurlandsvegi rétt fyrir hádegi í dag.

Samanlagt voru fjórir í bílunum tveimur en að því er fram kemur á vef Ríkisútvarpsins hlaut einn til viðbótar minniháttar meiðsl í árekstrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×