Viðskipti innlent

Karolina Fund: Stefna að súkkulaðiframleiðslu í september

Sæunn Gísladóttir skrifar
Teymið að baki SÖLVA Chocolates.
Teymið að baki SÖLVA Chocolates. Vísir/Eyþór
Moon Chocolate teymið sem tekur nú þátt í Startup Reykjavík hefur hafið söfnun á Karolina Fund til að koma vöru sinni á markað í haust. Teymið hefur breytt um nafn og gengur nú undir nafninu SÖLVA Chocolates.

„Vélarnar eru á leiðinni til landsins og mun þá framleiðsla hefjast í byrjun september í nýja húsnæðinu okkar. Til að hjálpa til við fjármögnun höfum við sett af stað söfnun á Karolina Fund og ætlum við okkur að safna milljón á rúmlega mánuði. Allir sem styrkja fá boð í stærsta súkkulaðipartý sem haldið hefur verið og svo eru einnig í boði alls kyns súkkulaðiverðlaun!" segir Lára Borg Lárusdóttir. 

Lára Borg, ásamt Jórunni Maríu Þorsteinsdóttur, Sveini Lúðvíkssyni, Áshildi Friðriksdóttur og Unni Svölu Vilhjálmsdóttur, stendur að baki hugmyndinni. Öll eru þau nýútskrifuð úr Verzlunarskóla Íslands og hófst verkefnið fyrst í frumkvöðlaáfanga í skólanum. Moon Chocolate var valið fyrirtæki ársins 2016 í samkeppni ungra frumkvöðla, Junior Achievement, á Íslandi. 

Sjá einnig: Hágæða gjafasúkkulaði og konfekt framleitt af Verzlingum

Núna eru 28 dagar eftir af söfnuninni og rúmlega 250 þúsund krónur eða fjórðungur markmiðarins er komið inn í verkefnið. Þeir sem styrkja söfnunina fá eins og fyrr segir allir boð í súkkulaði partíið, einnig geta sumir fengið súkkulaðiplötur þegar þær koma úr framleiðslu sem og gjafakörfur, allt eftir því hve háa upphæð þeir styrkja fyrirtækið með.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×