Bíó og sjónvarp

Golden Globe-verðlaunin veitt í nótt: Hverjir vinna?

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Golden Globe-verðlaunin verða haldin í 73. skipti í nótt.
Golden Globe-verðlaunin verða haldin í 73. skipti í nótt. Vísir/GETTY
Verðlaunatímabilið í Hollywood stendur sem hæst um þessar mundir og einn af hápunktum þess fer fram í kvöld í 73. skipti þegar Golden Globe verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn.

Verðlaunin eru ein af þeim mikilvægari fyrir skemmtanabransann og þykja þau oft geta haft forspárgildi fyrir stóru verðlaunin, Óskarinn sem fram fer 28.febrúar.

Herlegheitin hefjast á miðnætti í öruggum höndum Ricky Gervais og því er ekki úr vegi að líta yfir tilnefningarnar í helstu flokkum og spá í spilin um það hvaða myndir og hvaða leikstjórar þykja líklegastir.

Glamour ætlar að fylgjast með verðlaunahátíðinni og segja frá því sem fyrir augu ber á Twitter-síðu sinni.

Besta kvikmynd í dramaflokki

Tilnefndar eru:

  • Carol
  • Mad Max:Fury Road
  • The Revenant
  • Room
  • Spotlight
Gagnrýnendur eru á því að hér sé um tveggja hesta kapphlaup að ræða á milli Carol, sem er sú mynd sem hlaut flestar tilnefningar til Golden Globe verðlaunanna eða fimm talsins, og Spotlight, sem er sannsöguleg mynd sem fjallar um blaðamenn Boston Globe og rannsókn þeirra a barnaníðsmálum í nágrenni Boston í upphafi 21. aldarinnar. Hún er talin vera hvað líklegust til þess að verða fyrir valinu sem besta myndin á Óskarsverðlaununum.

Hver vinnur? Carol eða Spotlight

Besta kvikmynd í gaman- eða söngleikjaflokki

Tilnefndar eru:

  • The Big Short
  • Joy
  • The Martian
  • Spy
  • Trainweck
The Big Short sem skartar Christian Bale, Brad Pitt og Steve Carrell þykir líkleg til afreka hér enda sú mynd sem flestir telja að muni eiga roð í Spotlight á Óskarsverðlaununum. The Martian á þó einhvern séns á að stela þessum verðlaunum enda mjög vinsæl mynd.

Hver vinnur? Líklega the Big Short, kannski The Martian.

Besti leikstjóri

Tilnefndir eru:

  • Todd Haynes, Carol
  • Alejandro Inarritu, The Revenant
  • Tom McCarthy, Spotlight
  • George Miller, Mad Max: Fury Road
  • Ridley Scott, The Martian


Í gegnum tíðina hafa þessi verðlaun oftar en ekki fallið í skaut þeirra sem ekki fá verðlaun fyrir bestu myndina. Flestir telja líklegast að reynsluboltinn Ridley Scott fái þessi verðlaun fyrir The Martian. Þó skal ekki útiloka Todd Haynes leikstjóra Carol, enda er það sú mynd sem fékk flestar tilnefningar.

Hver vinnur? Líklega Ridley Scott, kannski Todd Haynes

Lesa má fleiri spádóma hjá kvikmyndagagnrýnanda Vox en hann fór yfir líklega verðlaunahafa í öllum helstu flokkum verðlaunanna.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.