Mál gegn þremur mönnum sem ákærðir eru fyrir aðild sína að skartgriparán í Gullsmiðjunni í Hafnarfirði þann 22. október síðastliðinn var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Mennirnir, þeir Axel Karl Gíslason, Ásgeir Heiðar Stefánsson og Mikael Már Pálsson, eiga allir langan sakaferil að baki.
Tveir þeirra, þeir Axel Karl og Mikael Már, mættu við þingfestinguna í morgun og tóku afstöðu til sakarefnanna. Ásgeir Heiðar mætti ekki sökum veikinda en fyrirtaka verður í málinu í næstu viku og mun hann þá taka afstöðu til málsins.
Axel Karl, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í rúma þrjá mánuði vegna málsins, gekkst við því við þingfestinguna að hafa verið í versluninni þegar ránið á að hafa verið framið en sagði lýsingu í ákærulið eitt, þar sem ráninu er lýst, vera ranga.
Hann neitaði sök í öðrum ákæruliðum en hann er meðal annars ákærður fyrir tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar þar sem hann á að hafa skotið úr loftbyssu á nokkra lögreglumenn. Þá er Axel Karl einnig ákærður fyrir annað skartgriparán í Gullsmiðjunni sem hann á að hafa framið þann 26. september í fyrra og tekið þaðan verðmæti fyrir 1,1 milljón króna.
Mikael Már neitaði því að hafa skipulagt ránið í Gullsmiðjuna í október og að hafa tekið við þýfinu frá þeim Axeli og Ásgeiri gegn greiðslu með reiðufé og fíkniefnum. Hann var á reynslulausn þegar hann á að hafa tekið þátt í ráninu og úrskurðaði Hæstiréttur í janúar að hann skyldi afplána 240 daga efstistöðvar af tveggja og hálfs árs dómi sem hann hlaut í mars árið 2014.
Játar að hafa verið í skartgripaversluninni en segir lýsingu í ákæru ranga

Tengdar fréttir

Nýtti reynslulausnina til að taka þátt í vopnuðu ráni í Hafnarfirði
Maðurinn tók við þýfinu úr ráni sem framið var af tveimur mönnum, vopnuðum exi, í Gullsmiðjunni í október á síðasta ári.

Skartgriparán í Hafnarfirði: Annar maður handtekinn með afbrotaferil og fíkniefnatengda sögu
Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem skaut að lögreglu með loftbyssu í Keflavík í gærkvöldi.

Góðkunningjar lögreglu ákærðir fyrir skartgriparán
Axel Karl Gíslason, Ásgeir Heiðar Stefánsson og Mikael Már Pálsson eiga allir langan sakaferil að baki og eiga langa fangelsisdóma að baki.

Tveir til viðbótar teknir vegna skartgriparáns
Tveir menn voru handteknir í gær grunaðir um aðild að vopnuðu ráni sem framið var í Gullsmiðju í Hafnarfirði þann 22. september síðastliðinn.

Lögregla biðlar til almennings: Ofsaakstur og árekstur eftir hrottalegt skartgriparán í Lækjargötu
Tjónið hleypur á milljónum en starfsmaður á sextugsaldri flúði grímuklædda ræningja vopnaða exi. Einn var handtekinn í gærkvöldi eftir að hafa skotið af stuttu færi á lögreglumenn úr loftbyssu.