Viðskipti innlent

Fékk 155 þúsund krónur í bætur vegna glataðrar ferðatösku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ferðataska á flugvelli. Að öðru leyti tengist myndin fréttinni ekki.
Ferðataska á flugvelli. Að öðru leyti tengist myndin fréttinni ekki. Vísir/Getty
Evrópska neytendaaðstoðin (EEC) á Íslandi hefur aldrei haft fleiri kvörtunarumál til skoðunar en á síðasta ári. Alls voru málin 63 sem starfsfólk ECC á Íslandi hafði milligöngu um að væru leyst eða rúmlega eitt á viku. Um helmingsaukningu er að ræða á milli ára.

Í ársskýrslu EEC á Íslandi kemur fram að fyrirspurnirnar á nýliðnu ári hafi verið 175 alls en þær voru 106 í fyrra. Metárið var 2012 þegar 128 fyrirspurnir bárust.

Flest deilumálin sem koma til meðferðar ECC á Íslandi eru vegna erlendra ferðamanna sem lent hafa í einhvers konar vandræðum vegna viðskipta við íslenska seljendur, þá aðallega bílaleigur og flugfélög. Algengast er að ferðamenn séu frá Bretlandi eða Frakklandi.

Steinvala í rúðu og glötuð ferðataska

Meðal mála sem komu upp var spænskur ferðamaður sem lenti í því að ferðataskan hans skilaði sér ekki við komuna til landsins. Reyndi hann sjálfur að krefja flugfélagið um bætur en fékk ekki í gegn fyrr en tveimur dögum eftir að ECC á Íslandi skarst í leikinn.

Þá var tékkneskur ferðamaður á bílaleigubíl á ferðalagi um landið þegar steinn skaust úr jeppabifreið sem ók fyrir framan hann. Þrátt fyrir að ökumaður jeppans á undan hefði viðurkennt sök og skrifuð var skýrsla var ferðamaðurinn rukkaður um 572 evrur.

Ferðamaðurinn leitaði til ECC í Tékklandi sem leitaði til ECC á Íslandi. Málið endaði á þann veg að bílaleigan endurgreiddi ferðamanninum evrurnar 572 og baðst afsökunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×